Viðskipti Miðvikudagur 18.04.2012 - 11:39 - Ummæli ()

Ragnar þarf að borga 1,4 milljónir fyrir að kalla Árna og Friðrik „féfletta“

Ragnar Önundarson.

Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur, þarf að greiða fjárfestunum Árna Haukssyni og Friðirki Hallbirni Karlssyni hvorum um sig 300 þúsund krónur í miskabætur vegna meiðyrða. Auk þess þarf hann að greiða samtals 800 þúsund krónur í máls- og birtingakostnað.

Ragnar skrifaði tvær greinar í Morgunblaðið í ágúst og september í fyrra þar sem hann fór hörðum orðum um viðskipti þeirra Árna og Friðriks í Húsasmiðjunni. Kallaði hann viðskiptafélagana „féfletta“ og sagði að þeir höfðu látið Húsasmiðjuna borga fyrir sjálfa sig. Þegar þeir höfðu náð fyrirtækinu „fyrir ekkert“ hafi þeir selt „vitorðsmönnum sínum“ í fasteignafélagi eignir félagsins á yfirverði.

Andvirði eignanna notuðu þeir strax til að greiða sjálfum sér stórfelldan arð. Eftir sátu ótryggðir kröfuhafar og starfsmenn félagsins í mikilli áhættu. Kaupendurnir reyndust ekki raunverulegir fjárfestar heldur „féflettar“.  Félagið sligaðist fljótt undan skuldum sem komu sjálfum rekstrinum ekki við og féll í faðm bankans,

segir meðal annars í greinum Ragnars. Þeir Árni og Friðrik sættu sig ekki við efni greinanna og höfðuðu meiðyrðamál gegn Ragnari.

Í niðurstöðum Héraðsdóms Reykjaness er ekki fallist þau rök Ragnars að orðið „féflettir“ sé nýyrði, og er vitnað í orðabók þar að lútandi. Þannig merki sögnin „að féfletta“ að hafa fé af einhverjum eða pretta og orðið „féflettingur“ er sá sem hefur fé af einhverjum, eða stórfelld fjársvik.

Samkvæmt þessu verður ekki horft fram hjá því að stefndi fullyrðir í umþrættum blaðagreinum að stefnendur hafi við kaup Húsasmiðjunnar haft fé af félaginu með svikum. Auk þess er stefnendum legið á hálsi að hafa stundað stórfelldan þjófnað. Slíkar ásakanir eru mjög alvarlegar, enda eru fjársvik og þjófnaður brot á almennum hegningarlögum,

segir í niðurstöðu héraðsdóms. Þar segir enn fremur að Ragnari hafi ekki tekist að koma fram með haldbæra sönnun fyrir ummælum sínum. Á það við um fullyrðingar á borð við þær að þeir Árni og Friðrik séu í „í sjálftökuliði“ sem hafi stundað „stórfelldan þjófnað“, fullyrðingar um „vitorðsmenn í banka“; „féflettingu“ Húsasmiðjunnar og „yfirverð á fasteignum“.

Engin gögn málsins renna nokkrum stoðum undir fullyrðingar stefnda í þessa veru og að mati dómsins eru allar tilvitnaðar fullyrðingar stefnda rangar og ósannaðar. Þá hefur stefndi ekki sýnt fram á það að umþrættar blaðagreinar hans séu fræðandi og upplýsandi…

Niðurstaðan var því sú að öll þau ummæli sem kært var fyrir voru dæmd dauð og ómerk. Þarf Ragnar að kosta birtingu dómsins, forsendur og dómsorð í opinberu blaði auk þess að greiða Árna og Friðriki hvorum um sig 300 þúsund krónur í miskabætur. Málskostnaður, 600 þúsund krónur, fellur sömuleiðis á Ragnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is