Steinunn Valdís: Fékk sms um umsátur – Mikill misskilningur að ég hafi hætt vegna mótmæla
Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir það mikinn misskilning að mótmæli sem stóðu fyrir utan heimili hennar í fjórar vikur hafi orðið til þess að hún sagði af sér þingmennsku.
Steinunn Valdís, sem sat á þingi fyrir Samfylkinguna, sagði af sér þingmennsku þann 27. maí 2010, rúmum mánuði eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út. Hún hafði mátt sæta gagnrýni vegna tæplega 15 milljóna króna styrkja sem hún fékk í tveimur prófkjörum árið 2006.
Á þessum tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan heimili nokkurra stjórnmálamanna. Einna kröftugust voru mótmælin fyrir utan heimili Steinunnar Valdísar, eins og hún greinir sjálf frá á Facebook síðu sinni.
Þann 17. apríl 2010 fékk ég sms um að verið væri að skipuleggja umsátur um mitt heimili. Kvöldið eftir þann 18. apríl mættu á staðinn hópur (mest megnis karlar) sem voru fastagestir fyrir utan hjá mér á hverju kvöldi í heilar fjórar vikur og kröfðust afsagnar minnar sem þingmanns,
segir Steinunn Valdís og bætir við:
Margir halda að vegna þessara mótmæla hafi ég hætt í stjórnmálum. Það er mikill misskilningur – Þeir sem nenna geta skoðað fréttir frá miðjum apríl fram til loka maí og þá blasir svarið við.
Ekki er vitað hvaða frétta Steinunn Valdís vísar nákvæmlega til, en í yfirlýsingunni þar sem hún tilkynnti afsögn sína útskýrði hún að fjármögnun kosningabaráttu hennar í prófkjörunum tveimur og vangaveltur um eðli hennar yfirgnæfði öll hennar störf á þingi og gerði henni ókleift að rækja skyldur sínar.
Til að sátt megi verða þarf víða að brjóta odd af oflæti og leita eftir megni að því sem sameinar okkur sem manneskjur fremur en því sem sundrar. Með það fyrir augum vil ég leggja mitt lóð á vogarskálarnar og stíga til hliðar í þeirri von að kraftar okkar allra beinist fyrst og fremst að uppbyggingu réttláts samfélags,
sagði í yfirlýsingu hennar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is