Viðskipti Miðvikudagur 18.04.2012 - 08:59 - Ummæli ()

Wernersbróðir færði rekstur yfir á börnin – Ellefu og sjö ára tóku við miklum skuldum

Ólafur Ívan Wernersson, bróðir systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, færði eignarhald á einkahlutafélaginu Glaðheimum yfir á börnin sín tvö árið 2008. Þau voru þá ellefu og sjö ára gömul.

Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu. Inni í Glaðheimum er reksturinn á Hótel Blönduósi og gistiheimili í bænum. Börnin, fædd 1997 og 2001, fengu bæði allan rekstur félagsins og skuldir upp á 130 milljónir króna við skiptin.

Frá því Ólafur keypti hótelið árið 2005 hefur reksturinn skilað tapi öll árin, ef undan er skilið 1,2 milljóna hagnaður árið 2008. Eigið fé félagsins hefur verið neikvætt um tugi milljóna sex síðustu ár. Árið 2010 var eigið fé neikvætt um 75 milljónir, samkvæmt ársreikningi.

Samkvæmt lögum er megin reglan sú að ófjárráða einstaklingur megi ekki stofna til skulda. Barn má þó eiga í viðskiptum hafi það hag af því, en sýslumaður þarf að veita samþykki fyrir eignatilfærslunni. Sýslumaðurinn á Blönduósi kannast ekki við ofangreinda tilfærslu, samkvæmt Viðskiptablaðinu.

Ólafur segir gjörninginn skýrast af því að hann hafi slitið samvistir við sambýliskonu sína og móður barna þeirra um það leyti sem breytingin átti sér stað. Samkomulag hafi náðst þeirra á milli að færa eignarhaldið yfir á börnin. Ólafur er engu að síður titlaður hótelstjóri í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is