Fimmtudagur 19.04.2012 - 14:00 - Ummæli ()

Gaf fjármálakerfinu langt nef – Hefur lifað án peninga í 12 ár og býr í helli

Daniel Suelo er virkur þátttakandi í samfélaginu, þrátt fyrir frumstæða lifnaðarhætti.

Haustið 2000 tók Daniel Suelo, þá rétt tæplega fertugur að aldri, þá afdrifaríku ákvörðun að hætta alfarið að nota peninga. Hann settist að í helli í óbyggðum Utah fylkis og hefur búið þar alla tíð síðan. Þrátt fyrir það er Suelo enn virkur þátttakandi í samfélaginu og heldur úti bloggi.

Lífstíll Suelos er einfaldur. Hann dvelur í hellinum, aflar sér matar í náttúrunni – stundum í ruslagámum – og leggur sér jafnvel vegabráð til munns. Hann hefur enga vinnu, á engan bankareikning og þiggur ekki bætur af hinu opinbera.

En Suelo er síður en svo einangraður frá umheiminum. Hann er virkur meðlimur í nærsamfélagi sínu og heldur úti vinsælli bloggsíðu.

Félagi hans til margra ára, Mark Sundeen, hefur nú gefið út bók um þennan einkennilega vin sinn. Hann segir að lengi vel hafi hann og aðrir haldið að Suelo hafi hreinlega misst glóruna, en eftir fjármálahrunið 2008 hafi þessi ákvörðun hans ekki verið svo galin.

Hann sagði að peningar væru tálsýn, en ég trúði því ekki. Þegar efnahagurinn hrundi árið 2008, og peningarnir sem við áttum hreinlega hurfu, endurskoðaði ég þessa ákvörðun mína. Kannski hafði hann eitthvað fyrir sér í þessu, því ef húsið okkar er hálfrar milljónar virði einn daginn en 300 þúsund þann næsta, hvað varð um þessi 200 þúsund. Hvaða peningar voru þetta fyrir það fyrsta?

Eftir fjármálahrunið hafa sprottið fram grasrótarhreyfingar sem eru afar gagnrýnar á fjármálakerfið, þó hver á sínum forsendum, hreyfingar eins og No Labels, Occupy og teboðshreyfingin.

Allar þessar hreyfingar, hvort sem þær eru til hægri, vinstri eða á miðjunni, hafa komist að þeirri niðurstöðu að fjármálakerfi okkar er ónýtt. Það er of stórt til að stjórna því og það eru of margir þrælar þessa kerfis. Það sem verra er, það er ekkert sem við getum gert til að breyta því. Síðan kemur Daniel og segir: „Hey, maður þarf ekki að vera hluti af þessu kerfi. Ég hef sannað að það er hægt að lifa af í 12 ár án þess að nota peninga,“

segir Sundeen við BBC. Viðtal við hann má sjá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is