Fimmtudagur 19.04.2012 - 11:01 - Ummæli ()

Gagnrýninn Árni Páll að marka sér stöðu sem formaður Samfylkingarinnar

Árni Páll er ósáttur við vinnubrögð framkvæmdastjórnar ESB.

Með harðri og opinni gagnrýni á ríkisstjórnina og Jóhönnu Sigurðardóttur er Árni Páll Árnason að skapa sér sérstöðu innan Samfylkingarinnar og um leið gera sig gildan sem formannskandídat, segir Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins.

Eftir að hafa verið látinn fara úr ríkisstjórn hefur Árni Páll verið mun gagnrýnni á störf ríkisstjórnarinnar. Hann lýsti í vikunni yfir óánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar innan stjórnarráðsins og sagðist ekki munu styðja þær og þá sagðist hann ekki hafa trú á stefnu Seðlabankans í afnámi gjaldeyrishafta, í greinarflokki sínum um höftin.

Styrmir segir í pistli á Evrópuvaktinni að þessi gagnrýni tónn og sérstaða Árna Páls styrki stöðu hans þegar kemur að kosningu nýs formanns Samfylkingar, sem verður annað hvort undir lok þessa árs eða snemma á því næsta.

Styrmir álítur að varaformaðurinn Dagur B. Eggertsson komi ekki til álita í þessum átökum.

Hann hefur horfið að verulegu leyti í því sérstæða samstarfi, sem hann á innan borgarstjórnar Reykjavíkur. Hver svo sem skoðun manna kann að vera á Bezta flokknum heldur hann forystunni í borgarmálum og Samfylkingin er þar aukahjól.

Einnig hefur verið horft til Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, sem næsta formanns. Styrmir segir yfirgnæfandi líkur á því að hann verði keppinautur Árna Páls um embættið.

Vandi hans er hins vegar sá, að hefur ekki frjálsar hendur um eitt eða neitt á meðan hann situr í ríkisstjórn. Og eftir því sem óvinsældir ríkisstjórnarinnar aukast og fylgi Samfylkingar minnkar verður krafan háværari innan flokksins um að aðrir taki við en nánustu samherjar Jóhönnu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is