George Soros: Ég myndi veðja gegn evrunni í dag – Evruríki í stöðu þriðja heims ríkja
Georges Soros, einn kunnasti og hæfasti spákaupmaður síðustu ára, segir í viðtali við franska blaðið Le Monde, að ef hann væri enn virkur fjárfestir í dag myndi hann veðja gegn evrunni. Hann er afar gagnrýninn á leiðtoga evruríkjanna.
George Soros varð alræmdur þegar hann var sakaður um að hafa orðið til þess að bresk stjórnvöld urðu að fella gengi sterlingpundsins árið 1992. Hann hafði þá skortselt jafnvirði 10 milljarða dollara af breskum pundum en hagnaður Soros af þeim viðskiptum einum saman nam um milljarði Bandaríkjadollara.
Soros segir við franska blaðið að evran ógni nú tilvist Evrópusambandsins. Þótt tilgangur leiðtoganna sé góður, þá er stefna þeirra einfaldlega röng.
Tilkoma evrunnar hefur leitt til sundrungar fremur en sameiningu. Brothættustu löndin á evrusvæðinu hafa vaknað við það að þau eru í sömu stöðu og þriðja heims ríki…og það er raunveruleg hætta á greiðslufalli. Að láta þau fara eftir reglum sem virka ekki gerir hlutina einungis verri. Því miður skilja yfirvöld þetta ekki.
Soros bætist í hóp hagfræðinga og annarra fjármálaspekúlanta sem gagnrýnt hafa leiðtoga evruríkja harðlega fyrir það hvernig tekið er á skuldavandanum. Þannig sagði nóbelshagfræðingurinn Paul Krugman fyrr í vikunni að aðgerðir til bjargar Spáni væru „hrein geðveiki.“
Maður kemst ekki hjá því að skynja örvæntingu. Í stað þess að viðurkenna að þeir hafa rangt fyrir sér, þá virðast evrópskir leiðtogar staðráðnir í að keyra hagkerfi sín – og samfélög – fram af bjargbrúninni. Og allur heimurinn mun gjalda fyrir það,
sagði Krugman í grein sem hann skrifaði á vef New York Times.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
