Horfum enn á eftir gagnaverum – Greenstone tók Bandaríkin fram yfir Blönduós
Ekkert verður úr því að fyrirtækið Greenstone reisi gagnaver hér á landi líkt og áform voru uppi um. Í stað þess að reisa gagnaver á Blönduósi valdi fyrirtækið að reisa það í Bandaríkjunum.
Greenstone hefur frá árinu 2008 haft hug á að reisa gagnaver á Íslandi. Undirrituð hafði verið viljayfirlýsing við Blönduósbæ sem hafði skipulagt 128 hektara lóð undir byggingu gagnaversins. Áætlað var að gagnaverið skapaði um 120 störf og allt að 720 störf á byggingartíma.
Talsmaður Greenstone á Íslandi, Sveinn Óskar Sigurðsson, kennir stjórnvöldum um hvernig fór. Hann segir í viðtali við Morgunblaðið, sem greinir frá málinu, að aðilar eins og Íslandsstofa og heimamenn hafi staðið við sitt, en að ríkisstjórnin hafi verið óviljug.
Ísland hefur verið að heltast úr lestinni þar sem hið opinbera hefur ekki staðið eðlilega að því að bæta umhverfi fyrir þessa fjárfestingu.
Hann nefnir sem dæmi tafir á breytingu laga og reglna varðandi skattamál, væntingar Landsvirkjunar um hærra raforkuverð og of hátt verðlag á gagnaflutningum til og frá landinu. Eigendur Greenstone hafi rekið sig á það að fjárhagslegt bolmagn Farice var ekkert vegna offjárfestingar í Danice-strengnum.
Bæði Landsvirkjun og Farice verðlögðu sig út af þessum markaði á þeim tíma og nú eru gagnaversfyrirtækin farin að leita annað með stærri verkefni, eins og til Svíþjóðar og Finnlands. Það kemur hvorki heimilunum í landinu né þessum iðnaði til góða að hækka raforkuverðið. Það hefur aldrei freistað erlendra fjárfesta að vita til þess að hækka eigi verð á raforkunni.
Eins og Eyjan greindi frá á dögunum ákváðu tölvurisarnir Facebook og Google að reisa sín gagnaver í Finnlandi og Svíþjóð. Vonir standa þó enn til að tölvurisinn Microsoft reisi gagnaver á Íslandi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is