Frakkar og Þjóðverjar vilja taka upp landamæragæslu innan Schengen svæðisins
Frakkar og Þjóðverjar munu leggja það til í næstu viku að ríkjum innan Schengen svæðisins verði leyft að taka upp landamæragæslu á ný. Slíkar ráðstafanir yrðu þó tímabundnar og einungis notaðar sem síðasta mögulega úrræði.
Tillagan verður lögð fram á fundi innanríkisráðherra ESB ríkjanna í næstu viku. Ísland er aðili að Schengen svæðinu og myndu breytingarnar, nái þær í gegn að ganga, einnig eiga við hér á landi.
Að því er þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung greinir frá leggja Frakkar og Þjóðverjar til að hægt verði að taka upp tímabundna landamæragæslu í allt að 30 daga. Ríki sem það gera þurfa að uppfylla ströng skilyrði og ráðstöfunin þyrfti að vera lokaúrræði.
Tillögurnar koma nokkuð á óvart, ekki síst í ljósi þess að leiðtogar þessara ríkja mótmæltu því harðlega þegar Danir tóku upp landamæragæslu á landamærum Svíþjóðar og Danmerkur í fyrra. Í núverandi samningi er einungis heimilt að koma á landamæragæslu í afar óvenjulegum aðstæðum. Þannig settu Þjóðverjar upp slíka gæslu þegar HM í fótbolta fór fram í landinu árið 2006.
Að baki tillögunni liggur ótti ráðamanna í Frakklandi og Þýskalandi við ólöglega innflytjendur, ekki síst þá sem koma frá Austur-Evrópu og í gegnum Grikkland sem á í erfiðleikum með að stýra landamæragæslu innan sinnar lögsögu.
Leiddar hafa verið líkur að því að tillagan sé kosningabrella af hálfu Nikolas Sarkozy sem á nú í vök að verjast í forsetakosningunum sem fram fara um helgina. Hann hefur verið afar gagnrýninn á Schengen svæðið í kosningabaráttunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is