Föstudagur 20.04.2012 - 19:45 - Ummæli ()

Heimsókn Wens Jiabao til Íslands vekur grunsemdir – Af hverju fer hann þangað fyrst?

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur á móti Wen Jiabo. Mynd/Pressphotos.biz.

Sú staðreynd að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi ákveðið að heimsækja Ísland fyrst allra landa í Evrópuför sinni vekur upp grunsemdir um fyrirætlanir kínverskra stjórnvalda á norðurslóðum og ásókn þeirra í auðlindir þar, segir í frétt Reuters fréttastofunnar um heimsókn Jiabaos.

Wen Jiabao kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag sem stendur fram á sunnudag. Því næst heldur hann til Þýskalands, Póllands og Svíþjóðar.

Í tengslumm við heimsóknina hafa verið undirritaðir sex samningar eða samkomulög milli ríkjanna; Rammsamningur Íslands og Kína um norðurslóðasamstarf, samkomulag um aukið samstarf á sviði sjávar- og norðurslóðarannsókna, samkomulag um jarðhitasamstarf í þróunarríkjum, sameiginleg viljayfirlýsing Íslands og kínverska fyrirtækisins Blue Star um byggingu 65 þúsund tonna kísilmálmvinnslu og samkomulag um ráðgjöf við fjárfestingar milli Íslandsstofu og Þróunarbanka Kína. Loks var undirrituð samstarfsyfirlýsing Orku Energy Holding og Sinopec Group um jarðvarmanýtingu til húshitunar og raforkuframleiðslu.

Reuters fréttastofan gerir heimsókninni skil, þar sem segir að hápunktur Evrópuferðar Jiabaos sé án efa heimsóknin til Þýskalands og fundur með Angelu Merkel, Þýskalandskanslara. En Íslandsheimsóknin vekur upp spurningar, segir í grein Reuters.

Það að forsætisráðherra þessa fjölmennasta ríki heims ákveði að koma fyrst við á afskekktri eyju með 320 þúsund íbúa hefur vakið upp vonir um innspýtingu kínversks fjár inn í fjárvana efnahag sem enn glímir við afleiðingar þess að fasteignabólan sprakk árið 2008, en um leið grunsemdir um ásókn stjórnvalda í Peking í náttúruauðlindir.

Í fréttinni er Nubo málið rifjað upp og þær grunsemdir um að kaup hans á Grímsstöðum á fjöllum hafi verið liður í þeim fyrirætlunum Kínverja að ná fótfestu á norðurslóðum.

Með því að byrja í opinberri heimsókn á Íslandi, hefur Wen ýtt undir áhyggjur Evrópumanna um að Kína sé að notfæra sér efnahagsvanda landsins til að ná fótfestu á Norður-Atlantshafi og á Norðurskautinu.

Á svæðinu eru miklar auðlindir á borð við olíu, gas, gull, demanta, sínk og járn. Og eftir því sem ísinn þar bráðnar samfara hlýnun jarðar opnast mikilvægar siglingaleiðir sem munu hafa mikil áhrif á viðskipti milli Asíu, Evrópu og austurstrandar Bandaríkjanna.

Þegar kemur að Norðurskautinu, þá erum við alltaf með Kína í huga,

segir ónefndur emæbttismaður frá Evrópu við Reuters.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is