Föstudagur 20.04.2012 - 13:41 - Ummæli ()

Jiabao kominn með fjölmennt fylgdarlið – Kínverjar mun stærri biti af kökunni en áður

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína. Mynd/Pressphotos.biz

Wen Jiabao er lentur á Keflavíkurflugvelli ásamt fjölmennu fylgdarliði. Það voru Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson sem tóku á móti honum. Heimsóknin er táknræn í ljósi sífellt aukinna samskipta þessara tveggja þjóða.

Flugvél kínverska forsætisráðherrans lenti klukkan 11:45. Allt að 100 mann fylgdarlið er með  honum í för, meðal annnars ráðherra utanríkisviðskipta, Chen Deming, sem reyndar kom á undan og fundaði möð Össuri í morgun.

Ráðherrarnir ræddu yfirstandandi fríverslunarsamningaviðræður Íslands og Kína þar sem utanríkisráðherra óskaði eftir því að ný lota í fríverslunarviðræðunum yrði haldin hið fyrsta og að tollalækkanir á fiskafurðum tækju gildi strax við gildistöku samningsins eða fyrr.

Ráðherrarnir fögnuðu auknum viðskiptum milli landanna og utanríkisráðherra hvatti Kínverja til að taka vel á móti íslenskum fyrirtækjum sem sæktu á Kínamarkað. Útflutningur frá Íslandi til Kína jókst um tæp 60 prósent á milli áranna 2010 og 2011 og innflutningur frá Kína um rúm 20 prósent. Þá sóttu um 9000 kínverskir ferðamenn Ísland heim árið 2011 en það er um 80 prósent aukning á milli ára.

Á fundinum óskaði utanríkisráðherra óskaði eftir útvíkkun á loftferðasamningi ríkjanna sem kínverski ráðherrann sagðist myndu koma á framfæri og hvatti til þess að málið yrði rætt í sameiginlegri viðskiptanefnd landanna ásamt öðrum mikilvægum viðskiptamálum milli ríkjanna.

Utanríkisráðherra tók upp málefni norðurslóða og tækifærin sem breyttar siglingaleiðir myndu skapa til framtíðar.

Heimsókn Wens Jiabao stendur fram á sunnudag. Í dag fundar hann með Jóhönnu Sigurðardóttur í Þjóðmenningarhúsinu og Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum.

Síðdegis verður svo efnt til hátíðarkvöldverðar í Hörpunni. Þar ætla Vinir Tíbets að safnast saman og vekja athygli á mannréttindabrotum Kínastjórnar í Tíbet.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur á móti Wen Jiabo. Mynd/Pressphotos.biz


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is