Laugardagur 21.04.2012 - 12:45 - Ummæli ()

Kínverskir öryggisverðir ýttu við blaðamanni á Bessastöðum – Spurði um afdrif Bo Xilai

Íslenskir fjölmiðlar hafa ekki enn fengið tækifæri til að ræða við Wen Jiabao. Mynd/Pressphotos.biz

Kínverskir öryggisverðir veittust að blaðamanni Bloomberg fréttaveitunnar á Bessastöðum, þegar hann reyndi að spyrja Wen Jiabao spurninga um mál Bo Xilai, sem rekinn var úr Kommúnistaflokknum á dögunum.

Nokkurar gremju gætir meðal íslenskra fjölmiðlamanna vegna heimsóknar kínverska forsætisráðherrans. Fjölmiðlamenn voru látnir fylgja kínverska föruneytinu í rútu í allan gærdag, en ekki á einum tímapunkti gafst þeim færi á að spyrja Wen Jiabao spurninga.

Við það bætist að valdar kínverskar fréttastofur fengu óheftan aðgang að forsætisráðherranum, svokallaðan „priority press“ passa á meðan íslenskir fjölmiðlar þurftu að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Einn fjölmiðlamaður orðaði það þannig við Eyjuna að þeir höfðu verið „hafðir að fíflum“.

Ómar Valdimarsson, fréttaritari Bloomberg fréttaveitunnar á Íslandi, gerði hins vegar tilraun til að spyrja Wen Jiabao spurninga eftir fund hans með Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum. Hugðist Ómar spyrja hann út í mál Bo Xilai, fyrrum ráðherra og háttsetts yfirmanns í kínverska kommúnistaflokknum. Bo var á dögunum rekinn úr flokknum, en hann og eiginkona hans eru sögð viðriðin morð á breskum kaupsýslumanni.

Þegar Wen nálgaðist blaðamenn og Ómar gerði sig líklegan til að spyrja ráðherrann, stilltu kínverskir öryggisverðir sér upp fyrir framan hann. Ómar lét sér ekki segjast og bar upp spurninguna og var það þá sem öryggisvörðurinn gekk að Ómari og ýtti við honum.

Óvenjuleg upplifun að vera gripinn og ýtt af kínverskum öryggisvörðum við Bessastaði í dag, þegar ég reyndi að spyrja um afdrif Bo Xilai…

sagði Ómar á Facebook síðu sinni síðdegis í gær. Wen gekk rakleiðis út í bíl og ók í burtu, en á meðan hélt öryggisvörðurinn Ómari í skefjum.

Ómar segir enn fremur á Facebook síðu sinni að íslenska lögreglan hafi verið til fyrirmyndar. Þannig hafi íslenskur lögreglumaður séð það sem fram fór og virtist hann „pínu gáttaður“, þótt hann hafi ekki aðhafst.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is