Laugardagur 21.04.2012 - 15:02 - Ummæli ()

Óeðlilegt að útiloka konur á barneignaraldri frá ábyrgðarstöðum

Það er óeðlilegt að útiloka konur á barneignaraldri frá ábyrgðarstöðum, segir Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi í kveðju sem hún hefur sent stuðningsmönnum sínum.

Nokkur umræða hefur verið um þá staðreynd að Þóra á von á barni í næsta mánuði, en kosningarnar verða í júní og nýtt kjörtímabil forseta, nái hún kjöri hefst 1. ágúst 2012. Þóra vill greinilega skýra áform sín og fjölskyldunnar í þessum efnum sjálf og að fyrra bragði og í morgun birtist á framboðssíðu hennar ljósmynd þar sem réttindi kvenna á barneignaraldri eru áréttuð og með fylgir kveðja frá frambjóðandanum.

Í kveðjunni segir:

Ég fer í fæðingarorlof í maí, þegar barnið kemur í heiminn. Við munum taka okkur tíma til að hvílast og safna kröftum og reiknum með að vera komin á ról aftur fyrir kosningabaráttuna í júnímánuði. Þar stend ég ég ekki ein, heldur verður Svavar mér við hlið eins og endranær og allt okkar öfluga fjölskyldunet.

Mér finnst mikilvægt að foreldrar taki fæðingarorlof enda er þessi tími ómetanlegur bæði fyrir börn og foreldra. Aðstæður mínar núna eru vissulega óvenjulegar en ég er ákveðin í því að ef ég næ kjöri, taki ég við starfinu á tilsettum tíma eða þann 1. ágúst 2012. Annað finnst mér óhugsandi enda embættið þess eðlis.

Ég mun sinna börnunum mínum eins og ég hef alltaf gert þrátt fyrir að vera í annasömu starfi, Svavar mun taka lengra fæðingarorlof og mun reyndar láta af störfum sem fréttamaður og verða heimavinnandi húsfaðir – að minnsta kosti fyrstu árin.

Myndin og kveðjan sem birt var á framboðssíðu Þóru Arnórsdóttur í morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is