Sunnudagur 22.04.2012 - 08:47 - Ummæli ()

Lilja um Kermálið: Erum búin að endurreisa hrunsamfélagið

Lilja Mósesdóttir alþingismaður segir að sú ákvörðun landeigenda að meina forsætisráðherrum Íslands og Kína að skoða náttúrufyrirbærin í Kerinu í Grímsnesi, sýni að í raun hafi ekkert breyst í samfélaginu við hrunið.

Eins og Eyjan skýrði frá í gær, var haft eftir Óskari Magnússyni, formanni Kerfélagsins og útgefanda Morgunblaðsins, að lítill fyrirvari hafi verið gefinn auk þess sem landeigendum líki hvorki við stefnu stjórnvalda í Kína eða á Íslandi.

Jón Magnússon lögmaður gagnrýndi þessa framkomu harðlega í gær og sagði hana argasta dónaskap. Endurskoða þyrfti aðgengi almennings að þekktum náttúruperlum í kjölfar þessarar ákvörðunar sem væri ekki í takt við gamalgróna íslenska gestrisni.

Undir þetta tekur Lilja Mósesdóttir á heimasíðu sinni:

Stóra „Kermálið“ afhjúpar þá staðreynd að við erum búin að endurreisa hrunsamfélagið. Fram eru komnir sömu leikendur og gildi og á áttu leiksviðið fyrir hrun. Aftur er réttur einstaklingsins settur ofar hagsmunum þjóðarinnar. Réttur sem leyfilegt er að nota í pólítískum tilgangi jafnvel þótt slíkt komi niður á orðspori þjóðarinnar. Við eigum að tryggja aðgang þjóðarinnar að þjóðargersemum í einkaeign!


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is