Mánudagur 23.04.2012 - 14:04 - Ummæli ()

Geir H. Haarde sakfelldur fyrir einn ákærulið – Ekki gerð refsing

Geir H. Haarde gengur inn í Þjóðmenningarhúsið. Mynd/Pressphotos.biz.

Geir H. Haarde var sakfelldur fyrir einn ákærulið af fjórum í Landsdómsmálinu, en honum var ekki gerð refsing. Landsdómur kvað upp þennan dóm nú fyrir stundu.

Mikill fjöldi áhorfenda og fjölmiðla var saman kominn í Þjóðmenningarhúsinu til að verða vitni að þeirri sögulegu stund þegar Landsdómur kvað upp sinn fyrsta dóm.

Andrúmsloftið var rafmagnað og mátti heyra saumnál detta þegar Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms, kvað upp dómsorð.

Níu dómarar stóðu að meirihlutaáliti þar sem niðurstaðan var sú að sýkna bæri Geir af ákæruliðum 1.3, 1.4. og 1.5. Hann var hins vegar sakfelldur fyrir annan lið ákærunnar sem snéri að því að halda ekki ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni.

Fimm dómarar skiluðu saman minnihlutaáliti þar sem þeir töldu að sýkna bæri Geir af ákæruliðum 1.3, 1.4 og 1.5, en á öðrum forsendum en meirihlutinn. Þá töldu þessir sömu dómarar að sýkna bæri Geir af öðrum ákærulið.

Einn dómari, Sigrún Magnúsdóttir, lýsti sig sammála meirihlutaatkvæði dómaranna varðandi liði 1.3, 1.4, og 1.5, og að sýkna bæri Geir af öðrum ákærulið.

Í niðurstöðu meirihlutaálitsins segir:

Þegar lagt er mat á huglæga afstöðu ákærða á þessum tíma ber á hinn bóginn að horfa einnig til þess að hann kvaðst í skýrslu sinni fyrir dómi telja að það hafi verið á valdi sínu og Ingibjargar sem formanna stjórnarflokkanna að ákveða hvort ástæða væri til að fjalla um einstök mál að öllum ráðherrum viðstöddum. Því til stuðnings vísaði hann til venju, sem þróast hafi í samsteypustjórnum. Samkvæmt þessu verður að virða ákærða það til stórkostlegs gáleysis að hafa látið farast fyrir að taka þau málefni, sem áður voru rakin, til umfjöllunar á fundum ríkisstjórnarinnar, enda var honum ljóst eða mátti að minnsta kosti vera ljóst að þau væru svo mikilvæg og að auki þess eðlis, sem þáttur í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, að honum bæri skylda til þess.

Síðar segir:

Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa af stórfelldu gáleysi látið farast fyrir að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni eins og fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að honum hlaut að vera ljós sá háski, sem vofði yfir bankakerfinu og þar með heill ríkisins, eins og nánar greinir hér að framan, með þeim afleiðingum að ekki var um þau málefni fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Við ákvörðun viðurlaga verður að líta til þess að þetta brot telst hafa verið framið af stórfelldu gáleysi. Þótt ákærði hafi með þessu ekki eingöngu brotið gegn formreglu, svo sem rakið var hér áður, verður ekki horft fram hjá því að ekki hefði komið til sakfellingar í málinu hefði ákærði gætt að því einu að taka þessi málefni upp innan ríkisstjórnarinnar, eins og honum bar samkvæmt 17. gr. stjórnarskrárinnar. Í málinu er ákærði sýknaður af alvarlegustu brotunum, sem hann var borinn sökum um. Hann er 61 árs að aldri og hefur ekki áður hlotið refsidóm. Að öllu virtu verður honum ekki gerð refsing í málinu.

Málskostnaður fellur á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun Andra Árnasonar sem hljóða upp á rúmar 24 milljónir króna.

Ekki er hægt að áfrýja niðurstöðu Landsdóms.

Geir H. Haarde mun ræða við fjölmiðlamenn eftir um það bil 15 mínútur.

Fréttin verður uppfærð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is