Guðlaugur Þór: Ráðherrar hafa nú leitt sjálfa sig fyrir Landsdóm – Þingmönnum til háborinnar skammar

Með því að gera ekkert vegna verðtryggingar 2008 hefur tap lífeyrissjóðanna frá þeim tíma að stóru leyti fallið á heimilin að sögn Guðlaugs Þórs
„Þetta mál er þeim þingmönnum sem að því stóðu til háborinnar skammar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann segir niðurstöðuna væntanlega þýða að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar hafi leitt sjálfa sig fyrir Landsdóm.
Geir H. Haarde var í dag sakfelldur í Landsdómi fyrir að hafa ekki haldið ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Hann var sýknaður af öðrum ákæruliðum og var honum ekki gerð refsing.
Á Facebook síðu sinni segir Guðlaugur Þór niðurstöðuna sérkennilega.
Það er mjög sérkennilegt. Það þýðir væntanlega að ráðherrar í þessari ríkisstjórn munu leiða sjálfan sig fyrir Landsdóm vegna þess að þeir hafa ekki haldið ríkisstjórnarfundi um mikilvæg mál,
segir Guðlaugur Þór og nefnir þar helst málsókn ESB á hendur Íslandi, Líbýustríðið og gjaldeyrishöftin. Hann bætir við að lokum:
Þetta mál er þeim þingmönnum sem að því stóðu til háborinnar skammar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is