Össur ósammála en deilir ekki við Landsdóm: Það á ekki að nota þessa niðurstöðu til frekari mannvíga
„Ég tel að það eigi ekki að nota þessa niðurstöðu til að fara í frekari mannvíg,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um mál Geirs H. Haarde. Hann segir dóminn staðfesta að það var ekkert sem ríkisstjórn Geirs gat gert til að afstýra bankahruninu.
Frá sjónarhóli Geirs skiptir mestu máli að Landsdómur sýknar hann af öllum efnislegum sakargiftum. Honum og reyndar fleiri ráðherrum í rannsóknarskýrslunni var gefið að sök að hafa með athafnaleysi sínu ekki gripið til aðgerða sem gátu komið í veg fyrir bankahrun. Nú kemst Landsdómur að allt annarri niðurstöðu með algjörri sýknu um þau atriði ákærunnar,
segir Össur í samtali við Eyjuna. Össur segir að eftir þessa niðurstöðu liggi fyrir tvö atriði. Í fyrsta lagi að Geir H. Haarde eigi ekki sök á bankahruninu og í öðru lagi að sú ríkisstjórn sem Geir var forsætisráðherra fyrir, átti ekki kost á því að grípa til neinna aðgerða sem gátu afstýrt hruninu.
Það er í algjöru samræmi við niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem sýndu að ekki var hægt að grípa til neinna aðgerða eftir mitt ár 2006, sem hefðu getað afstýrt hruninu,
segir Össur og bætir við:
Geir var sakfelldur fyrir eitt atriði sem er að hafa ekki boðað til ráðherrafunda um mikilvæg stjórnarmálefni. Ég var ósammála því að það ætti að leiða til sakfellingar, en ég deili ekki við Landsdóm. Það er niðurstaðan.
Össur segir þó að sakfelling í þessum ákærulið sé áfellisdómur yfir allar fyrri ríkisstjórnir því þær höfðu allar þennan sama hátt á.
Um leið er það sterk áminning og ábending til allra sem fara með völd í stjórnsýslunni, hvort sem það eru stjórnmálamenn eða embættismenn, um að vanda sig betur. Þetta er einn af þeim lærdómum sem núverandi forsætisráðherra dró af skýrslu rannsóknarefndarinnar, því nú eru öll mál tekin fyrir í ríkisstjórn og allir fundir bókaður.
Geir voru dæmdar 24 milljónir króna í málskostnað, en í yfirlýsingu sinni sagði hann að málsvarnarlaun hans hafi numið 40 milljónum. Honum vantaði því 16 milljónir upp á til að standa straum af kostnaðinum við réttarhöldin. Hann tók fram að þann kostnað myndu bakhjarlar hans greiða, en tók fram að með þessu væri búið að opna leið til að koma höggi á alla fyrrverandi forsætisráðherra.
Nei, ég er ekki sammála því,
sagði Össur aðspurður út í þessi ummæli Geirs.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is