Þór Saari: Geir á að sætta sig við þetta en ekki haga sér eins og bjálfi
„Geir H. Haarde hefur verið sakfelldur fyrir að hafa brotið stjórnarskrána og brugðist sem forsætisráðherra. Hann á að sætta sig við það en ekki haga sér eins og bjálfi,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar um niðurstöðu Landsdóms.
Geir var sem kunnugt er sakfelldur fyrir að halda ekki ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Í yfirlýsingu sem hann las upp í Þjóðmenningarhúsinu gerði Geir harða atlögu að þeim sem stóðu að ákærunni og sagði að allt fólk sem snefil af sómatilfinningu myndi segja af sér eftir slíkan löðrung sem niðurstaðan var.
Þór er ekki sammála, því hann skrifar í færslu sem hann birtir á Facebook.
Geir H. Haarde hefur verið sakfelldur fyrir að hafa brotið stjórnarskrána og brugðist sem forsætisráðherra. Hann á að sætta sig við það en ekki haga sér eins og bjálfi. Við getum vel við unað sem þingmenn og sem þjóð eftir þennan dóm þó málskostnaður hefði mátt falla á Geir. Björgun hinna þriggja ráðherrana frá ákæru af samflokksönnum sínum er svo annað mál og skandall út af fyrir sig sem hefði aldrei átt að gerast.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
