Þriðjudagur 24.04.2012 - 20:26 - Ummæli ()

Árlegi bókamarkaðurinn í Bókinni hafinn – 50 þúsund titlar á helmings afslætti

Hinn árlegi bókamarkaður Bókarinnar að Klapparstíg 25 hófst í gær og stendur hann fram á laugardag. Í boði eru hátt í 50 þúsund bækur sem allar eru á 50 prósent afslætti.

Að sögn Ara Gísla Bragasonar eru bækurnar um allt milli himins og jarðar, til að mynda erlendar og innlendar listaverkabækur, matreiðslu- og vínbækur, garðyrkjubækur, barnabækur, ferðabækur og ættfræðibækur, svo fátt eitt sé nefnt.

Auk fjölda íslenskra bóka eru þúsundir titla á ensku, dönsku og frönsku. Þá eru allar kiljur í versluninni seldar á 100 krónur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is