Viðskipti Þriðjudagur 24.04.2012 - 08:06 - Ummæli ()

Enginn stuðningur við agaða hagstjórn á Íslandi – Losum okkur við krónuna sem fyrst

Jón Steinsson, dósent við Columbia háskóla.

„Ef við getum ekki haldið aftur af verðbólgu þegar hagkerfið er verndað á bak við gjaldeyrishöft og atvinnuleysi er 6%, er borin von að við getum rekið okkar eigin gjaldmiðil með góðum árangri í opnu hagkerfi,“ segir hagfræðingurinn Jón Steinsson.

Jón, sem er dósent í hagfræði við Columbia háskóla í New York, skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann færir rök fyrir því að hækka þarf vexti all verulega, í það minnsta 2 til 2,5 prósent til að byrja með. Ástæðan er há verðbólga sem hefur skilað sér í neikvæðum raunvöxtum.

Jón segir að hækkun vaxta myndi bremsa hagkerfið af með því að draga úr útlánum banka og auka sparnað. Um leið munu háir vextir styðja við gengi krónunnar og draga þannig úr verðbólguþrýstingi.

Jón spyr hvers vegna verðbólga á Íslandi er há, á sama tíma og það er engin þensla í þjóðfélaginu. Líklegasta skýringin, að hans mati, er sú að verðbólgan sé sjálfsprottin.

Ef enginn hefur trú á því að Seðlabankinn muni gera neitt í því þótt verðbólga hækki getur verðbólga sprottið af sjálfu sér.

Þetta ferli virðist vera að grafa um sig á Íslandi, segir Jón og bætir við:

Seðlabankinn er reyndar blóraböggull í þessu öllu saman. Hinn raunverulegi vandi er að það er enginn stuðningur í samfélaginu fyrir því að Seðlabankinn haldi verðbólgu í skefjum. Alltaf þegar Seðlabankinn aðhefst eitthvað fær hann yfir sig holskeflu gagnrýni alls staðar að. Stjórnmálamenn í öllum flokkum skammast í honum. Og það gera líka forystumenn í verkalýðshreyfingunni og forystumenn atvinnurekenda.

Öll elítan í landinu er samstiga í því að skammast í Seðlabankanum ef hann vogar sér að reyna að halda aftur af verðbólgu. Það er því ekki nema von að verðbólga sé sjálfsprottin um þessar mundir á Íslandi.

Jón segir ljóst að stemmningin á Íslandi fyrir agaðri hagstjórn sé afar lítil.

Talsmenn þess að við höldum í krónuna segja að það þurfi „bara“ agaðri hagstjórn í framtíð en í fortíð. Sannleikurinn er sá að það er enginn stuðningur á Íslandi fyrir agaðri hagstjórn þegar kemur að peningamálum. Ef við getum ekki haldið aftur af verðbólgu þegar hagkerfið er verndað á bak við gjaldeyrishöft og atvinnuleysi er 6%, er borin von að við getum rekið okkar eigin gjaldmiðil með góðum árangri í opnu hagkerfi.

Sjálfur hefur Jón litla trú á að þessi hugarfarsbreyting verði á Íslandi, því hann sér einfaldlega ekki hvaðan hún ætti að koma.

Þetta er stærsta ástæðan fyrir því að ég hallast mjög að því að við eigum að losa okkur við krónuna eins fljótt og við getum. Þeir sem vilja halda í krónuna verða að vera í fararbroddi um að breyta hugarfari landsmanna til aðhaldssamrar peningamálastefnu. Annars eru þeir að berjast fyrir því að við höldum í ónýtan gjaldmiðil.

Best væri ef stjórnmálamenn og aðrir framámenn í samfélaginu tækju sig til og gagnrýndu Seðlabankann fyrir að gera ekki meira til þess að halda aftur af verðbólgu og kölluðu eftir auknu aðhaldi og hærri vöxtum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is