Þriðjudagur 24.04.2012 - 10:05 - Ummæli ()

Gjá á milli Ólafs Ragnars og formanna flokkanna – Lilja nýtur mesta traustsins

Ólafur Ragnar Grímsson er sá stjórnmálamaður sem nýtur mest trausts íslensku þjóðarinnar, samkvæmt könnun MMR. Lilja Mósesdóttir nýtur mest trausts þeirra sem bjóða sig fram á vegum stjórnmálaflokkanna.

Helmingur þeirra sem tók afstöðu í könnun MMR sögðust bera mikið eða mjög mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar. 28,5 sögðust bera til hans lítið traust.

Gjá er á milli Ólafs Ragnars og þeirra sem taka þátt í flokkapólitík. Lilja nýtur langmesta traustsins, en 28,5 prósent þátttakenda segjast bera til hennar traust.  Næstur kemur Steingrímur J. Sigfússon, en 19,8 prósent bera til hans trausts.

Þar á eftir koma Jón Gnarr (18,6%), Jóhanna Sigurðardóttir (17,4), Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (17,1), Bjarni Benediktsson (15,9), Þór Saari (15) og Guðmundur Steingrímsson.

Athygli vekur að Ólafur Ragnar bætir all verulega við sig frá síðustu könnun, eða um 8,5 prósentustigum. Traustið til Jóhönnu, Jóns Gnarr og Sigmundar Davíð eykst á meðan traust til Bjarna og Steingríms minnkar. Traust til Lilju, Þórs og Guðmundar var nú mælt í fyrsta sinn.

Enn fremur vekur athygli að Ólafur Ragnar nýtur langmests traust meðal kjósenda Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, eða á milli 63 til 66 prósent. Rúmlega helmingur óákveðinna treystir Ólafi.

Lilja nýtur bærilegs trausts meðal kjósenda allra flokka nema Samfylkingar þar sem það mælist mjög lágt og áberandi er hversu eindregið kjósendur VG treysta á sinn foringja, því 91 prósent kjósenda flokksins treysta Steingrími.

Traust Sjálfstæðismanna til Jóhönnu er sama og ekki neitt, eða 0,5 prósent, og að sama skapi er ekki einn einasti kjósandi Samfylkingarinnar sem treystir Sigmundi Davíð eða Bjarna. Þá er Bjarni sá formaður sem nýtur minnsta traustsins meðal eigin kjósenda. 55 prósent sjálfstæðismanna treysta honum.

Athygli er vakin á því að könnunin er gerð  dagana 9. til 14. febrúar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is