Grímuklæddur maður með sveðju og rýting réðist á íslensk hjón á Seychelles-eyjum
Ráðist var á hjónin Sigurgeir Sigurjónsson og Helgu Gísladóttur þar sem þau voru á ferðalagi á Seychelles-eyjum í Indlandshafi. Grímuklæddur maður með rýting og sveðju réðist á þau, en þau komust undan við illan leik.
Þetta var ekkert annað en morðárás, maðurinn var með nærbol vafinn um höfuðið þar sem búið var að klippa í göt fyrir augun og hann minnti mig einna helst á Fílamanninn,
segir Sigurjón á vefsíðunni eirikurjonsson.is, sem greinir frá málinu. Atvikið átti sér stað fyrir nokkrum dögum. Segir Sigurjón þau hjónin hafa verið að koma ofan af fjalli þegar grímuklæddur maðurinn stekkur fram með rýting og sveðju og heimtar öll verðmæti.
Sigurjón neitaði að afhenda honum verðmætin og þegar þau kölluðu eftir hjálp réðist maðurinn til atlögu. Eftir nokkur átök tókst þeim að komast undan og var Sigurjón þá orðinn alblóðgur.
Sen betur fer voru þetta aðeins skrámur á handlegg og sundurskornar buxur en lögreglan tók þetta mjög alvarlega þegar ég birtist svona alblóðugur á lögreglustöðina.
Þau Sigurjón og Helga eru komin heim til Íslands, en ekki er vitað hvort árásarmaðurinn sé fundinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
