Þriðjudagur 24.04.2012 - 11:50 - Ummæli ()

Ríkið er að taka 100 prósent verðtryggt húsnæðislán fyrir næst dýrustu framkvæmd sögunnar

Teikning af fyrirhuguðu háskólasjúkrahúsi. Mynd/nyrlandspitali.is

„Engir peningar eru til í ríkiskassanum og því verður ríkið að taka verðtryggt lán fyrir þessari næst dýrustu framkvæmd Íslandssögunnar að öllu leyti,“ segir Magnús Halldórsson, viðskiptaritstjóri Vísis. Hann segir ríkið fara „grísku leiðina“ í fjármögnun nýs háskólasjúkrahúss.

Magnús fjallar ítarlega um byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut,  í grein sem hann skrifar á Vísi. Hann rifjar upp hvernig 100 prósent íbúðalán settu marga Íslendinga í skuldafen og hvernig bankar og Íbúðalánasjóður virðast hafa lært af reynslunni með því að bjóða aðeins upp á 80 til 85 prósenta lánshlutfall í dag. Annað virðist hins vegar gilda um íslenska ríkið.

Íslenska ríkið er núna með í undirbúningi að taka 100 prósent verðtryggt húsnæðislán upp á 50 til 60 milljarða króna og nota fjármunina (Lífeyrissjóðirnir líklega, surprise, surprise) í að byggja nýjan spítala. Engir peningar eru til í ríkiskassanum og því verður ríkið að taka verðtryggt lán fyrir þessari næst dýrustu framkvæmd Íslandssögunnar að öllu leyti.

Magnús segist eiga erfitt með að sjá hvernig ríkið hafi efni á því að taka þetta 100 prósent verðtryggða húsnæðislán í ljósi erfiðrar skuldastöðu ríkissjóðs og furðar sig á því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi ekki greint þetta í opinberum skýrslum. Engu að síður hafi sjóðurinn lagt til að skorið verði meira niður í rekstri ríkisins, eða sem nemur 8 milljörðum.

Það er heldur ekki traustvekjandi að ríkið skuli ætla að fara grísku leiðina þegar kemur að þessum spítala, það er að binda fjárhagslegar skuldbindingar er tengjast þessari framkvæmd í opinberu hlutafélagi (NLSH), utan efnahagsreiknings ríkisins, þrátt fyrir að skuldbindingarnar séu óumflýjanlega ríkisins. Guðbjartur Hannesson velferðarráðhetta lét hafa eftir sér í viðtali fyrir nokkru, að þetta kæmi ekki beint við rekstur ríkisins vegna þessa fyrirkomulags, en vonandi voru það bara mismæli.

Enn fremur segir Magnús það ekki traustvekjandi að þeir sem komið hafa af verkefninu hafi áður gerst sekir um „ævintýralega óstjórn í fjárálum“. Vísar hann í borgarfulltrúa sem „rústuðu fjárhag“ Orkuveitu Reykjavíkur svo og Gunnar Svavarsson sem er stjórnarformaður NLSH sem fer fyrir verkinu.

Hann var bæjarfulltrúi meirihlutans í Hafnarfirði þegar teknar voru alrangar ákvarðanir um ótrúlegar milljarða lántökur í erlendri mynt, þó lögbundið sé að sveitarfélög geti aðeins haft tekjur í krónum. Fyrir þessum ákvörðunum eru engar gildar afsakanir sýnist mér, allra síst að Hafnarfjörður hafi orðið 100 ára 2008, þegar hluti lána var tekinn,

segir Magnús og bætir við:

Að auki kemur það nokkuð á óvart í ljósi augljósra tengsla Gunnars við Samfylkinguna, sem fyrrum þingmaður og trúnaðarmaður til margra ára, að hann hafi fengið þetta ábyrgðarmikla starf. Vonandi var þetta ekki spillt pólitísk ráðning.

Talað hefur verið um að hagræðingin af byggingu nýs sjúkrahús séu tveir milljarðar á ári. Magnús veltir hins vegar upp þeirri spurningu hversu mikil verðbólgan megi vera svo að sú hagræðing étist ekki upp. Sviðsmyndir af því hafa ekki enn verið dregnar upp.

Kostnaður reynist meiri en reiknað var með, samanber skandalinn við húsbyggingu höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur, annað risahýsi í Reykjavík, þar sem milljörðum af skattfé var eytt umfram það sem áætlað var.

Magnús tekur þó fram að hann sé í sjálfu sér er hann ekki á móti byggingunni „að grunni til“, því miðað við fyrirliggjandi gögn getur um skynsamlega fjárfestingu verið ræða til framtíðar litið. Hins vegar stendur allt og fellur með því að til séu peningar fyrir framkvæmdunum og að vaxtakostnaði sé haldið í lágmarki.

Hann er alltof mikill núna, og raunar með ólíkindum að það sé ekki meiri umræða um hann þegar kemur að rekstri ríkisins. Frekari skuldsetning er á kostnað komandi kynslóða og felur í sér skerðingu á opinberri þjónustu fyrir hana, og fífldjarfar ákvarðanir um 100 prósent verðtryggt húsnæðislán upp á tugi milljarða, virðast ekki rýmast innan þessarar stöðu, eins og þetta horfir við mér.

Grein Magnúsar í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is