Þriðjudagur 24.04.2012 - 14:02 - Ummæli ()

RÚV hefur ekki þegið krónu af ESB – Fimm starfsmenn farið í námsferðir

Ríkisútvarpið hefur ekki tekið við neinum fjármunum frá Evrópusambandinu í þeim tilgangi að kynna starfsemi sambandsins.  Engar reglur hafa verið mótaðar um samskipti RÚV við ESB.

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar á Alþingi.

Ásmundur Einar spurði meðal annars að því hvort mótaðar hafi verið reglur um samskipti RÚV við ESB og stofnanir á þess vegum vegna aðildarviðræðna Íslands.

Í svarinu kemur fram að samskipti við ESB lúta sömu lögmálum og venjum og gilda um önnur alþjóðasamtök, bandalög, einstök ríki og aðra hagsmunaaðila. Eina hlutverk RÚV sé að miðla fréttum og upplýsingum til almennings og því hafa slíkar reglur ekki verið settar.

Ásmundur Einar fór einnig fram á upplýsingar um kynnisferðir sem kostaðar hafa verið af ESB og stofnana á þess vegum.

Í svarinu kemur fram að RÚV þiggur ekki styrki frá ESB eða öðrum til fréttaöflunarferða eða dagskrárgerðar. Hins vegar hafi einstakir starfsmenn RÚV farið í náms- eða kynnisferðir í tengslum við Evrópusamstarfið, sem kostaðar hafa verið af því eða tengdum aðilum.

Frá október 2009 hafa fimm starfsmenn RÚV farið í slíkar ferðir, þar af er einn starfsmaður hættur störfum. Þetta eru þau Ragnhildur Thorlacius, Bára Sif Halldórsdóttir,  Ægir Þór Eysteinsson, Gunnar Hrafn Jónsson og Heiðar Örn Sigurfinnsson. Í öllum tilvikum fóru þau til útlanda í hópi með öðrum íslenskum blaða- og fréttamönnum.

Loks spurði Ásmundur Einar hvort RÚV hafi tekið við fjármunum frá ESB eða stofnunum þess í þeim tilgangi að kynna starfsemi sambandsins. Svarið var einfalt:

Nei.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is