Þriðjudagur 24.04.2012 - 15:46 - Ummæli ()

Snýr Geir aftur í stjórnmálin? Ræðir við eiginkonuna áður en næstu skref verða tekin

Eiginkonan Inga Jóna Þórðardóttir mun hafa eitthvað að segja um framtíðaráform Geirs H. Haarde.

Geir H. Haarde hefur ekki enn ákveðið hvað hann tekur sér fyrir hendur eftir að Landsdómsmálið er að baki.

Alþingi samþykkti að ákæra Geir í umdeildri atkvæðagreiðslu í september 2010 og hefur Landsdómsmálið tekið allan hans tíma síðan. Geir, sem er nýorðinn 61 árs, hefur í raun ekki haft atvinnu síðan hann hætti afskiptum af stjórnmálum vorið 2009 og því velta menn nú fyrir sér hvað hann taki sér fyrir hendur.

Fréttamaður Bloomberg fréttaveitunnar spurði Geir að því hvað hann tæki sér nú fyrir hendur og hvort hann muni hugsanlega hella sér að nýju út í stjórnmálin.

Ég get sagt þér í fullri hreinskilni að ég hef ekki hugmynd um það. Fyrsta manneskjan sem ég ræði það við er eiginkona mín og ég hef ekki enn fengið tíma til þess.

Hér má sjá viðtali við Geir H. Haarde


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is