Miðvikudagur 25.04.2012 - 15:55
- Ummæli
()
Agnes M. Sigurðardóttir er næsti biskup Íslands – Sigraði með 64 prósent atkvæða
Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur á Vestfjörðum, verður næsti biskup Íslands. Talningu í biskupskjöri lauk á fjórða tímanum í dag.
Alls greiddu 477 atkvæði og hlaut Agnes 307 atkvæði, eða rúm 64 prósent. Sigurður Árni Þórðarsson hlaut 152 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 18.
Herra Karl Sigurbjörnsson, fráfarandi biskup, mun vígja Agnesi í embætti þann 24. júní og tekur hún formlega við embættinu 1. júlí.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
