Í greiðsluaðlögunarferli í tvö ár – Ekki samþykkt nema að húsið og bíllinn fari á sölu
Lilja Mósesdóttir, Samstöðu, vill að lyklafrumvarpi hennar verði hraðað í gegnum þingið þar sem greiðsluaðlögun sé ekki að virka. Hún segir dæmi um að fjölskylda hafi verið í greiðsluaðlögunarferli í tvö ár, en fái ekki samning fyrr en hún hefur selt húsið og bílinn.
Í umræðum um störf þingsins hvatti Lilja meirihluta þingsins til að hraða frumvarpinu. Segir hún liggja á málinu, því þeir sem eru í greiðslu- og skuldavanda bíði eftir úrlausn og hrópi á samþykkt frumvarpsins.
Lilja tók dæmi um fjölskyldu sem hefur verið í greiðsluaðlögunarferli í tvö ár. Á dögunum hafi hún fengið bréf frá bankanum þar sem segir að ekki verði gerður samningur um greiðsluaðlögun nema fasteign og bifreið fjölskyldunnar fari í sölu. Enn fremur hafi bankinn lofað einhverri skuldauppgjöf, en tiltók ekki upphæðina.
Greiðsluaðlögunarúrræðið er ekki að virka, heldur að tefja nauðsynlega skuldaleiðréttingu og jafnframt að brjóta fólk niður sem gerði ekkert annað af sér en að fjárfesta í fasteign og bifreið,
sagði Lilja og bætti við að lyklafrumvarp hennar sé það úrræði sem gagnast þessu fólki fyrst og fremst.
Þetta vita fjármálastofnanir og sumar hverjar hafa nú þegar afskrifað skuldir þeirra sem hafa látið af hendi fasteign sína.
Lilja benti enn fremur á að Íbúðalánasjóður innheimti ekki kröfur þar sem engin veðtrygging eða fasteign er á bak við.
Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir að umsagnarfrestur um frumvarpið renni út á morgun og þá geti nefndin farið að vinna í frumvarpinu.
Í fyrsta lagi er það alrangt að greiðsluaðlögun sé ekki að virka. Hún er að virka fyrir fullt af fólki .Hún er að skila hundruðum út úr greiðslujöfnun og inn í skil og til miklu betri vegar. Hún virkar ekki fyrir alla, það er alveg rétt,
sagði Björgvin. Nú þegar hafa tvær umsagnir borist um frumvarpið. Fjármálaeftirlitið gerir ekki athugasemdir við efni þess, en Samtök fjárfesta telja aftur á móti að breytt hegðun neytenda, verði frumvarpið að lögum, hafi í för með sér óhóflega skert aðgengi að lánsfé.
Á móti kemur að frumvarpið styrki stöðu neytenda gagnvart fjármálastofnunum til muna. Björgvin segir að eftir að farið hefur verið yfir umsagnir, og kostir og gallar frumvarpsins metnir, sé ekkert því til mótstöðu að það fari aftur inn í þingið.
Það kemur vel til álita að mínu mati.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
