Viðskipti Miðvikudagur 25.04.2012 - 17:40 - Ummæli ()

Landflótti í Grikklandi – Tugir þúsunda Grikkja freista gæfunnar í öðrum ESB-ríkjum

Frá árinu 2008 hafa um 600 þúsund störf glatast í Grikklandi með þeim afleiðingum að þúsundir Grikkja hafa yfirgefið heimaslóðir sínar og freistað gæfunnar annars staðar í Evrópu. Þessi tala gæti slagað upp í milljón því enn er verulegur samdráttur í grísku efnahagslífi.

Grikkir hafa verið í stöðugum vandræðum síðan fjármálakrísan reið yfir árið 2008. Hagkerfið dróst saman um 6,9 prósent í fyrra og í morgun var greint frá því að samdrátturinn í ár verði 5 prósent, í stað 4,5 prósent eins og áður hafði verið spáð.

Út frá þessum tölum þarf ekki að koma á óvart að atvinnuleysi er gríðarlega mikið, en hátt í fimmtungur Grikkja er án atvinnu. Grísk stjórnvöld samþykktu harðar niðurskurðaraðgerðir fyrr í vor sem hafa í för með sér að fjölda opinberra starfsmanna verður sagt upp. Þingkosningar verða í landinu 6. maí sem eykur enn frekar á óvissuna.

Reuters fréttastofan greinir frá því að hátt í 600 þúsund störf hafi glatast í krísunni. Tugir þúsunda Grikkja hafa flutt úr landi síðan fjármálakrísan hófst, en Grikkir voru árið 2010 11,3 milljónir talsins samkvæmt gögnum Alþjóðabankans. Langflestir freista gæfunnar í öðrum ríkjum Evrópusambandsins, einkum og sér í lagi London og Þýskalandi.

Um 7 þúsund Grikkir fluttust til Þýskalands í fyrra. Þetta er mun hærra hlutfall en frá öðrum ríkjum Suður Evrópu sem glíma líkt og Grikkland við skuldavanda, því ekki hefur borið á viðlíka fólksflótta frá Spáni, Ítalíu og Portúgal.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is