Miðvikudagur 25.04.2012 - 20:17 - Ummæli ()

Segir stjórnmálamenn hafa farið með stjórn landsins eins og rassvasafyrirtæki

Niðurstaða Landsdóms sýnir að ríkisstjórnir síðari tíma hafi farið með stjórn landsins eins og hálfgert „rassvasafyrirtæki“, segir prófessor í sagnfræði. Hann segir að allir stjórnmálamenn, í hvaða flokki sem er, þurfi að taka dóminn til sín.

Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, sagði í viðtali við Spegilinn á Rás 2 í dag að dómurinn í gær væri ekki bara áfellisdómur yfir Geir H. Haarde og hvernig hann stjórnaði sinni ríkisstjórn, heldur yfir öllu stjórnmála- og embættismannakerfinu.

Greinlegt er að á undanförnum árum og áratugum hafi forystumenn þeirra flokka sem sitja í ríkisstjórn farið að ráða því sem ríkisstjórnin gerir..

…og einfaldlega farið með stjórn landsins eins og hálfgert rassvasafyrirtæki sitt og þetta er greinilega mjög mikill áfellisdómur fyrir þess konar stjórnsýslu,

segir Guðmundur. Geir sitji hins vegar uppi með skellinn, enda varð hrunið á hans vakt. Guðmundur sagði jafnframt að óheppilegt væri hversu margir af æðstu embættismönnum íslenskrar stjórnsýslu eru pólitískt skipaðir. Nefndi hann sem dæmi að ekki hafi ríkt fullt traust á milli ríkisstjórnarinnar og bankastjórnar Seðlabankans þegar Davíð Oddsson var formaður bankastjórnar.

Það smitaði út frá sér.

Guðmundur segir enn fremur að í dómnum felist afar hörð gagnrýni á vinnubrögð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, þótt ekki hafi þótt tilefni til að sakfella hann fyrir öll ákæruatriðin. Geir hafi að mörgu leyti fengið þessi vinnubrögð í arf frá fyrri ríkisstjórnum. Þess vegna verði allir stjórnmálamenn, sama hvar í flokki þeir standa, að taka þennan dóm til sín.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is