Fimmtudagur 26.04.2012 - 09:28 - Ummæli ()

Neytendur hvattir til að sniðganga verslanir 1. maí – Hver er þín skoðun? / Könnun

Mjög er þrýst á verslunarrekendur að halda í heiðri baráttudag verkalýðsins og hafa verslanir sínar lokaðar þann 1. maí. Neytendur er enn fremur hvattir til að sniðganga verslanir sem hafa opið þennan dag.

Það var Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, sem hóf umræðuna í Morgunblaðinu í gær þar sem hann hvatti forráðamenn Kringlunnar og Smáralindar til að endurskoða þá ákvörðun að hafa opið 1. maí.

Þessi þróun á afgreiðslutíma verslana gengur þvert gegn hagsmunum félagsmanna VR sem starfa í greininni.

ASÍ fylgdi í kjölfarið og sendir frá sér eftirfarandi ályktun.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega fyrirætlunum verslanamiðstöðva og fleiri að hafa búðir opnar á 1 .maí baráttudegi verkalýðsins. Dagurinn er frídagur verslunarfólks eins og alls annars launafólks á Íslandi og hefur svo verið um áratugaskeið. Miðstjórnin harmar allar tilraunir til að breyta þessu og hvetur neytendur til að sniðganga verslanir sem hafa opið þennan dag.

Fleiri verkalýðsfélög hafa fylgt í kjölfarið. Ekki var að heyra á forráðamönnum Kringlunnar og Smáralindar að þeir hygðust breyta áformum sínum. Sögðu þeir við mbl.is að reynslan sýni að verslunarmiðstöðvarnar séu vel sóttar á þessum degi, auk þess sem þeir bentu á að verslunarmönnum sé í sjálfvald sett hvort þeir hafi opið eða ekki.

Hér að neðan getur þú sagt álit þitt á því hvort verslanir eigi að vera opnar 1. maí eða ekki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is