Fimmtudagur 26.04.2012 - 10:42 - Ummæli ()

Stephen Colbert gerir grín að áhuga Íslendinga á Kanadadollar – Upphafið á gjaldeyrisbyltingu Kanada

Colbert er ekki sérlega hrifinn af íslenska 5 þúsund króna seðlinum.

Háðfuglinn Stephen Colbert gerði áhuga Íslendinga á upptöku Kanadadollar að umfjöllunarefni í sjónvarpsþætti sínum, The Colbert Report, í fyrrakvöld. Hann segir að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í áætlun Kanadamanna um alheimsbyltingu á gjaldmiðlamarkaði.

Bandaríkjadollar er hin alþjóðlega mynt. Það er hægt að nota hann alls staðar í heiminum, kaupa sushi í Tókýó og vændiskonur í Cartagena. Það er enginn sem ógnar yfirráðum Ameríku á gjaldmiðlamarkaði, þar til núna,

segir Colbert og spilar upptöku af umfjöllun CNN um áhuga Íslendinga á Kanadadollar. Þetta er hinn „íhaldssami föðurlandsvinur“ Colbert síður en svo ánægður með og ræðst af hörku á Kanada.

Allir vita að George Washington er eina táknið sem alþjóðamarkaðir viðurkenna. Ekki fyrsti forseti Kanada, Featherford Beloon,

segir Colbert og birtir mynd af lóminum fræga sem prýðir mynt Kanada.

Þetta er bara upphafið af gjaldmiðlabyltingu Kanada. Kæra þjóð, við verðum að berjast gegn þessu áður en við glötum heillri kynslóð ungra Bandaríkjamanna yfir í eymd kanadískrar kurteisi og fjármálalegrar skynsemi.

Colbert hvetur Íslendinga til að standa í lappirnar.

Ísland, þið verðið að standast þrýstinginn frá hinum heillandi hornsteini Kanda, Elísabetu II….myndarleg kona,

segir Colbert og spyr:

Hvað er að ykkar eigin mynt, krónunni?

Birtist þá mynd af íslenska 5.000 króna seðlinum, þannig að Colbert hrekkur við, setur upp vandræðalegan svip og segir:

Jæks, ég hef aldrei spilað þetta spil.

Umfjöllun Colberts má sjá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is