Þingmaður segir þingið verða óstarfhæft í vor – Sömu lögmál á þingi og í Dallas

Valdabaráttan á þingi er jafn sjálfsögð og í sjónvarpsþáttunum Dallas, þar sem Ewing-bræðurnir JR og Bobby elduðu saman grátt silfur.
„Núna í lok þessa þings mun óstarfhæft alþingi að öllum líkindum birtast okkur enn á ný,“ segir þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson. Hann segir áhrifamestu leiðina í valdabaráttunni á Alþingi þá að hertaka pontuna.
Núna í lok þessa þings mun óstarfhæft alþingi að öllum líkindum birtast okkur enn á ný. Hópur þingmanna mun væntanlega setja sig á mælendaskrá í hverju máli á eftir öðru, tala mjög mikið og mjög oft. Þörfin á endurtekningum verður mjög mikil. Þeir sem eru sammála síðasta ræðumanni munu líka þurfa að segja það. Oft,
segir Guðmundur í grein sem hann skrifar á Eyjuna. Í greininni segir hann að á Alþingi ríki viðvarandi valdabarátta, sem margir telja að sé sjálfsögð á Alþingi. Hann er ósammála þeirri nálgun.
Mörg vitum við að valdabarátta, sé hún endalaus, setur flest í bál og brand. Fjölskyldur springa ef valdabarátta innan þeirra er viðvarandi, vinir hætta að talast við, JR hatar Bobby, fyrirtæki ganga illa og félagasamtök verða óstarfhæf. Sama gildir um alþingi. Viðvarandi valdabarátta, með tilheyrandi klækjum, skemmir og eitrar.
Guðmundur segir að hópur þingmanna sé búinn að skilgreina bestu leiðinna í þessari valdabaráttu. Þótt aðferðin sé gömul, þá virkar hún vel.
Að hertaka pontuna. Pontan á þingi er hliðið sem öll mál þurfa að fara í gegnum. Það þarf enga sérstaka kænsku til þess að sjá, að ef þú stjórnar hliðinu þá stjórnar þú miklu á þingi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is