Vanþakklæti heimsins – Fordekruðum fanga hundleiðist einveran
Hann er með einkaaðgang að líkamsræktarsal, bókasafni og sjónvarpsherbergi og matinn fær hann sendan frá veitingastað í grenndinni. Þrátt fyrir það er hann hundóánægður.
Þarna er verið að tala um þrítugan karlmann sem nýtur þess vafasama heiðurs að vera eini fanginn í San Marínó, þriðja minnsta ríki Evrópu þar sem um 30 þúsund manns búa.
Þótt aðstæður hans virðast síður en svo slæmar, þá er maðurinn síður en svo sáttur við lífið. Honum hundleiðist nefnilega. Einu samskipti hans við aðrar manneskjur eru við fangaverðina sem líta til hans nokkrum sinnum á dag, auk þess sem ættingjar og lögmenn koma öðru hvoru í heimsókn.
Svona hefur þetta verið í þann rúma mánuð sem hann hefur setið inni. Hann á enn eftir að afplána 8 mánuði af dómi sínum sem hann hlaut vegna heimilisofbeldis.
Fangelsið er í gömlu klaustri og þar hafa mest verið 14 fangar samtímis, árið 2009 og því hefur glæpum annað hvort fækkað eða löggæsluyfirvöld slakað á klónni. Fanginn, sem yfirvöld í San Marínó hafa ekki viljað nafngreina, getur þó byrjað að hlakka til því von er á öðrum fanga á næstu dögum.
Glæpatíðni er almennt lág í skattaparadísinni San Marínó. Algengustu glæpirnir tengjast einhvers konar fjármálastarfsemi, fyrst og fremst peningaþvætti.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
