Eyjan fær andlitslyftingu – Nýtt og betra útlit kynnt um helgina
Umtalsverðar útlitsbreytingar á Eyjunni verða gerðar á Eyjunni um helgina og næstu daga.
Veigamesta breytingin er sú að Eyjan fær frá og með morgundeginum nýjan einkennislit. Í stað rauða litsins sem einkennt hefur vefinn frá stofnun verður Eyjan klædd í appelsínugulan búning.
Uppbygging Eyjunnar verður í meginatriðum óbreytt frá því sem nú er. Uppsetning frétta verður með örlítið breyttu sniði og fréttatenglarnir verða áfram á sínum stað, sem og fastir liðir eins og Orðið á götunni.
Öflugir pennar Eyjunnar, sem frá upphafi hafa verið eitt helsta flaggskip hennar, munu eftir sem áður skipa veigamikinn sess á forsíðunni.
Baksíðan fékk á dögunum nýtt hlutverk þar sem fréttagildið er í fyrirrúmi. Þar má nú finna fréttir víðs vegar utan úr heimi, um allt milli himins og jarðar. Með nýju útliti fær þessi skemmtilegi vefhluti aukið vægi. Þá mega lesendur eiga von á nýjum efnistökum á næstu vikum.
Við erum mjög spennt fyrir þessum breytingum sem hafa komið mjög vel út í allri rýnivinnu. Með nýja útlitinu verður vefurinn bæði aðgengilegri og stílhreinni og allar breytingar miða að því að gera upplifun lesenda ánægjulegri,
segir Magnús Geir Eyjólfsson, ritstjóri Eyjunnar.
Búast má við því að einhverjar dagar eða vikur muni líða þar til nýtt útlit verður fullklárað.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
