Föstudagur 27.04.2012 - 15:10 - Ummæli ()

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda ætla ekki að una úrskurði sýslumanns

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur hafnað lögbannsbeiðni Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda, þess efnis að öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána verði stöðvuð. Ný lögbannsbeiðni verður lögð fram eftir helgi.

Lögbannsbeiðnin beindist að Landsbankanum en hefði orðið fordæmisgefandi fyrir aðrar lánastofnanir hefði hún verið samþykkt.

Í úrskurði sýslumanns er kröfu um lögbann hafnað á þeirri forsendu að ekki sé nægilega skýrt afmarkað til hvaða skuldabréfa lögbannsbeiðnin tekur, það er að  ekki sé nægilega skýrt við hvaða gengistryggðu lán sé átt.

Einnig telur sýslumaður að ekki hafi verið sýnt nægilega fram á að innheimta greiðsluseðla ólögmætra gengistryggðra lána hafi ótvíræðar afleiðingar fyrir neytendur.

Í yfirlýsingu segir að Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda munu ekki una þessum úrskurði og verður ný lögbannskrafa lögð fram strax eftir helgi með afmarkaðri hætti og frekari rökstuðningi varðandi þau atriði sem sýslumanni þótt á vanta og byggði frávísun sína á.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is