Viðskipti Föstudagur 27.04.2012 - 11:44 - Ummæli ()

Heiðar Már: Kanadískir bankar hafa áhuga á þátttöku í íslensku fjármálalífi

Frá ráðstefnu VÍB í Hörpunni.

„Ég veit til þess að kanadískir bankar hafa áhuga á að taka þátt í íslensku fjármálalífi,“ sagði hagfræðingurinn Heiðar Már Guðjónsson í erindi sem hann hélt í Hörpu morgun. Hann segir að tíminn til að losa íslenskt hagkerfi við gjaldeyrishöft sé á þrotum.

Heiðar Már var einn þeirra sem hélt erindi á ráðstefnu VÍB um einhliða upptöku gjaldmiðils í norðurljósasalnum í Hörpu í morgun, þar sem Manuel Hinds var aðalfyrirlesari.

Í erindi sínu sagði Heiðar Már að „sorgleg tilraun“ Íslands á peningamálum sé komin á endastöð, þar sem komið hefur verið á ströngustu gjaldeyrishöftum sem sést hafa síðan kommúnisminn féll.

Við erum í gjaldeyriskrísu og það þarf að finna leið út úr henni,

sagði Heiðar Már. Hann rakti það sem hann hefur áður haldið fram að árið 2016 muni Ísland lenda í alvarlegum skuldavanda. Stórir gjalddagar séu að hrannast upp og ekki er til nægur gjaldeyrir til að standa skil á þeim.

Við höfum því ekki mikinn tíma.

Heiðar Már segir að eina leiðin til að auka tekjur sé að auka fjárfestingu, sem nú er í sögulegu lágmarki. Það sé ekki vegna skorts á tækifærum, heldur vegna strangra gjaldeyrishafta. Einfaldasta leiðin til að losna við þau er að taka einhliða upp aðra mynt.

Heiðar Már telur að evruferlið, með tilheyrandi aðild að ESB, sé of tímafrekt. Telur hann að það muni taka Ísland allt að áratug að taka upp evruna, ef aðild að ESB verður yfir höfuð samþykkt.

Þess vegna horfir Heiðar Már til Kanadadollars, sem yrði sá gjaldmiðill sem hið opinbera myndi sýsla með, en í raun gætu fyrirtæki notað hvaða gjaldmiðil sem er í viðskiptum sínum.

Heiðar Már segir að Kanada sé „vinaþjóð“ sem hafi sömu framtíðarsýn og Ísland um mikilvægi Norðurslóða. Þess vegna séu þeir líklegir til að veita Íslendingum hjálparhönd í þessu ferli.

Ég veit til þess að kanadískir bankar hafa áhuga á að taka þátt í íslensku fjármálalífi,

sagði Heiðar Már og bætti við að eigendur íslensku bankanna vilja sömuleiðis tengjast alþjóðlegum bönkum.

Bankarnir myndu taka þessu fagnandi.

Heiðar Már segist ekki neinar hindranir í vegi þess að upptaka Kanadadollars geti orðið að veruleika, ef undanskildar eru pólitískar hindrandir sem byggja á misskilningi um það hvað fullveldi og sjálfstæði fela í sér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is