Föstudagur 27.04.2012 - 08:38 - Ummæli ()

Jón Steinar: Köpuryrði um mig í Mannlífi ekki komin frá samdómurum mínum

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari.

„Samdómarar mínir við Hæstarétt hafa allir greint mér frá því í persónulegum samtölum að þeir hafi ekki tjáð sig með nafnleynd við höfund greinarinnar um mig eða aðra starfandi dómara við réttinn,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari.

Í síðasta tölublaði Mannlífs var fjallað ítarlega um ráðningar dómara í Hæstarétti, einkum og sér í lagi ráðningar þeirra Jóns Steinars og Ólafs Barkar Þorvaldssonar.

Í greininni, sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifaði, voru ráðningar þeirra túlkaðar sem atlaga að Hæstarétti og að tvær fylkingar skipi dóminn í dag. Annars vegar Davíðsmennirnir Jón Steinar og Ólafur Börkur og hins vegar aðrir dómarar undir forystu Markúsar Sigurbjörnssonar, forseta Hæstaréttar.

Greinin var sögð byggja meðal annars á viðtölum við hæstaréttardómara, lögmenn, starfsmenn Hæstaréttar og fleiri opinberum gögnum.

Í stuttri yfirlýsingu sem Jón Steinar sendi frá sér í morgun segir:

Í tilefni af grein um Hæstarétt, sem birt var í aprílhefti tímaritsins Mannlífs, tek ég fram að samdómarar mínir við Hæstarétt hafa allir greint mér frá því í persónulegum samtölum að þeir hafi ekki tjáð sig með nafnleynd við höfund greinarinnar um mig eða aðra starfandi dómara við réttinn. Hafa þeir heimilað mér að skýra frá þessu á opinberum vettvangi. Köpuryrði um mig sem eftir þeim eru höfð í fyrrnefndri grein eru því ekki frá þeim komin.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is