Sigmundur Davíð: Tjónið af þessari ríkisstjórn meira en af sjálfu efnahagshruninu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa valdið meira tjóni en efnahagshrunið sjálft. . Mynd/Framsóknarflokkurinn
„Ef leggjum saman tjónið þá er orðið meira tjón fyrir efnahag Íslands af þessari ríkisstjórn en af efnahagshruninu sjálfu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Þetta sagði formaðurinn í viðtali við RÚV eftir miðstjórnarfund flokksins. Hann sagði undanfarin ár hafa farið til spillis og Ísland dregist aftur úr á mörgum sviðum. Til að mynda sé fjárfesting í sögulegu lágmarki.
Ef við leggjum saman tölur, þá er orðið meira tjón fyrir efnahag Íslands af þessari ríkisstjórn heldur en af efnahagshruninu sjálfu. Þar má nefna að menn hafa kastað á glæ tækifærum til þess að leiðrétta skuldir heimilanna, það má nefna að fjárfesting er hér í sögulegu lágmarki, atvinnuleysið. Tjónið af þessu öllu og röngum pólitískum viðbrögðum er orðið meira en af hruninu sjálfu.
Sigmundur Davíð tiltók ekki hvort hann sé þarna að tala um heildarkostnað vegna efnahagshrunsins, eða beint tjón ríkissjóðs af völdum þess. Á hvorn veginn sem er, þá er ljóst að um gríðarlegar fjárhæðir er að ræða, ef mat Sigmundar er rétt.
Þannig hefur komið fram að heildartap erlendra kröfuhafa vegna íslenska efnahagshrunsins nemur 7.400 milljörðum króna miðað við tölur Alþjóðagreiðslubankans frá í fyrra.
Ef Sigmundur Davíð var að vísa til beins tjóns ríkissjóðs er sömuleiðis ljóst að tjónið vegna sitjandi ríkisstjórnarinnar nemur hundruð milljónum króna. Til að mynda var heildarkostnaðurinn við tæknilegt gjaldþrot seðlabankans 175 milljarðar króna, samkvæmt svari fjármálaráðherra á Alþingi í fyrra.
Samkvæmt sama svari var heildarkostnaður ríkissjóðs vegna eiginfjárframlags ríkisins og víkjandi lána til Arion banka, Íslandsbanka og Nýja Landsbankanssamtals 196 milljarðar króna. Þetta gera samtals 371 milljarð króna. Þá er ótalinn annar kostnaður sem fallið hefur á ríkissjóð vegna bankahrunsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is