Viðskipti Laugardagur 28.04.2012 - 09:11 - Ummæli ()

Stefnubreyting hjá DV? Verðum að fyrirgefa og kalla útrásarvíkinga til verka

Þegar litið er til útrásarvíkinganna er kominn tími til lokauppgjörs. Þjóðin verður að sætta sig við að í einhverjum tilvikum tekst ekki að sanna sök þótt grunsemdir séu til staðar um vafasama eða ólöglega viðskiptahætti. Íslendingar verða að komast út úr þeim eltingarleik sem staðið hefur í hartnær fjögur ár. Við verðum einfaldlega að sætta okkur við að sumir eru fljótir að hlaupa og kunnu á undankomuleiðirnar. Annað hefur ekkert upp á sig.

Þetta skrifar Reynir Traustason ritstjóri DV í leiðara helgarblaðs DV sem vakið hefur mikla athygli og þykir vera til marks um stefnubreytingu af hálfu blaðsins. DV hefur farið mikinn í að gera hrunið upp og flytja fregnir af margvíslegum fjármálagerningum og málum sem eru til rannsóknar og hafa svokallaðir útrásarvíkingar verið tíðir gestir á forsíðu blaðsins um árabil.

En nú virðist sem ritstjóri blaðsins telji að þjóðin eigi að hætta að horfa í baksýnisspegilinn öllum stundum og einbeita sér þess í stað að framtíðinni. Komið sé að stund fyrirgefningarinnar:

Uppgjör okkar verður að fela í sér fyrirgefningu. Við eigum að virkja útrásarvíkingana fyrrverandi í endurreisn samfélagsins í stað þess að halda þeim í útlegð. Ekki er vanþörf á því að kalla til verka alla þá sem hafa vit og þekkingu sem nýtast kann endurreisn Íslands. En að sjálfsögðu á ekki að opna fyrir sama siðleysið og átti sér stað í aðdraganda hrunsins. Þannig verður að fyrirbyggja að krosseignarhald banka og fyrirtækja leiði til þess að menn komist í þá aðstöðu að ræna banka innan frá eða ná óeðlilegum völdum í samfélaginu í gegnum einokun. Forsenda fyrirgefningarinnar eru réttlæti og umbætur, sem fela í sér stóraukið gagnsæi og stórefldar heimildir til eftirlits.

Ritstjórinn segir að DV muni áfram flytja gagnrýnar fréttir, en segir svo:

Við verðum að sætta okkur við þann árangur eða árangursleysi sem sérstakur saksóknari hefur náð. Fjölmörg mál eru til rannsóknar og ákærur á fjölda manns í burðarlið. Staðan er einfaldlega sú að við nálgumst leiðarenda í uppgjöri hrunsins. Við náðum ekki höfuðpaurunum í stjórnmálunum sem gerðu allt siðleysið og sukkið mögulegt. Geir Haarde var einn þeirra sem felldu Ísland en fráleitt í aðalhlutverki. En staðreyndin blasir við. Hann var einn dæmdur. Við eigum að nota þessi tímamót til að snúa við blaðinu og nýta hina grunuðu til að byggja upp að nýju en samkvæmt leikreglum sem hæfa siðuðu samfélagi. Við eigum að fyrirgefa en við megum aldrei gleyma því sem gerðist.

Leiðari Reynis Traustasonar í DV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is