Viðskipti Sunnudagur 29.04.2012 - 15:15 - Ummæli ()

Bjarni treystir á krónuna – Veikasti kosturinn að taka einhliða upp annan gjaldmiðil

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist þeirrar skoðunar að krónan sé enn besti kosturinn fyrir Ísland. Hann segir einhliða upptöku annars gjaldmiðils veikasta kostinn í stöðunni.

Bjarni var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í dag, þar sem meðal annars var rætt um gjaldmiðlamál. Einhliða upptaka hefur verið mikið rædd í vikunni í tengslum við komu Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador, hingað til lands, en hann var jafnframt gestur Egils í dag. Bjarni segist ekki sammála Hinds um að Ísland þurfi að taka upp annan gjaldmiðil.

Ég held að það sé veikasti kosturinn af því sem menn standa frammi fyrir, svona heilt yfir. Fyrst og fremst held ég að það sé sterkast ef menn geta rekið sinn eigin gjaldmiðil. Það er sterkasti og besti valkosturinn. Gjaldmiðil sem tekur mið af efnahagsástandi í landinu.

Bjarni segir að lengi hafi verið talað um að hér skorti aga til að halda úti eigin gjaldmiðili svo vel sé, en það lögmál eigi líka við ef hér væri annar gjaldmiðill.

Ef það er fullkomið agaleysi á Íslandi, þá er heldur ekki gott að vera með gjaldmiðil annarrar þjóðar sem tekur ekki mið af efnahagsástandinu hér. Þá skapast hræðilegar aðstæður, aðstæður sem við sjáum í Grikklandi og hjá öðrum ríkjum sem hafa verið að eyða um efni fram um langt skeið.

Bjarni segist þó vera tilbúinn til að skoða alla kosti í stöðunni, en telur þó að gjaldeyrismálin séu langtímamál.

Á grundvelli íslensku krónunnar, með hana sem gjaldmiðil, hefur okkur tekist hvað? Að byggja einhver bestu lífskjör í Evrópu síðastliðin 50 ár. Það er stóra málið.

Í skýrslu utanríkisráðherra um alþjóðamál kom fram að stofnaður hefur verið vinnuhópur íslenskra stjórnvalda og sérfræðinga á vegum ESB sem finna á lausn á því hvernig hægt er að losna við gjaldeyrishöft og um leið koma í veg fyrir að erlendir krónubréfaeigendur fari með allt sitt fé úr landi. Bjarni segir það fela í sér litla lausn.

Ef menn ætla að fara að leysa alla þessa fjárfesta eftir að við göngum í evruna, þá mun ekkert annað gerast, þrátt fyrir að Evrópusambandið ætli að verða ofsalega liðlegt við okkur, en að ríkissjóður eða seðlabankinn mun lenda í stórskuld við Evrópska seðlabankann. Mér finnst það nú ekkert sérstaklega spennandi framtíðarsýn fyrir þjóðina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is