Sunnudagur 29.04.2012 - 11:51 - Ummæli ()

Geir: „Eflaust má segja að ég hafi tekið fulldjúpt í árinni gagnvart dóminum“

Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra. Mynd/Pressphotos.biz

„Ég tel að miðað við hvernig farið var af stað með þetta mál, þá hafi ég unnið stóran sigur – segja má að ég hafi unnið 95% sigur,“ segir Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra í viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins.

Nú er tæp vika liðin frá því Landsómur féll í máli Alþingis gegn fyrrverandi forsætisráðherra vegna bankahrunsins og virðist sem Geir vilji í viðtalinu við Morgunblaðið ræða málin með talsvert öðrum hætti en hann gerði á fundi með blaðamönnum í Þjóðmenningarhúsinu sl. mánudag aðeins örfáum mínútum eftir að forseti Landsdóms las dómsorðið.

Geir segir niðurstöðuna tala sínu máli:

Það var reitt hátt til höggs og farið af stað með sex ákæruliði. Þegar upp er staðið var fimm ákæruliðum sem snertu efnisatriði í tengslum við bankahrunið annaðhvort vísað frá eða ég sýknaður af þeim.

Og um viðbrögð sín, segir Geir:

Eflaust má segja að ég hafi tekið fulldjúpt í árinni gagnvart dóminum, þótt ég hafi vissulega mínar skoðanir á því hvernig meirihlutinn komst að sinni niðurstöðu. … Ég tel augljóst að niðurstaða meirihlutans varðandi sakfellingaratriðið byggist á málamiðlun, þar sem líklegt er að pólitísk sjónarmið hafi komið við sögu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is