Leið Lilju úr höftum: 10 milljóna króna lán verði að 8 milljónum í Nýkrónu
„Upptaka Nýkrónu er ekki töfrabragð heldur nauðsynleg varnaraðgerð til að koma í veg fyrir aukna fátækt og stórfelldan landflótta á næstu árum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður og formaður Samstöðu.
Í grein sem Lilja skrifar á vefsíðu sína segir Lilja að „snjóhengjunni“ svokölluðu, þeim 1.000 milljörðum sem óttast er að fari úr hagkerfinu við afnám gjaldeyrishafta, sé ætlað að koma skuldum einkaaðila á skattgreiðendur.
Umbreytist snjóhengjan í snjóflóð sem ryðst út úr hagkerfinu eins og margir forsystumenn Sjálfstæðismanna vilja, mun það leiða til sögulegs gengishruns, verðbólgubáls sem hvorki heimili né fyrirtæki munu lifa af. Hliðarráðstafanir eins og frysting verðtryggingar og matarskammtanir í götueldhúsum og skólum mun ekki afstýra harðindum þjóðarinnar verði þessi leið farin.
Líkt og Bjarni Benediktsson minntist á í Silfri Egils fyrr í dag, segir Lilja að stuðningur ESB við afnám gjaldeyrishafta sé í formi láns sem gæti numið 1.000 milljörðum króna. Árlegar vaxtagreiðslur af slíku láni séu á bilinu 30 til 50 milljarðar króna og yrðu „þungar byrðar“ á þjóðina.
Þess vegna hefur Samstaða lagt fram leið sem Lilja hefur áður talað fyrir og felst í svokallaðri „Nýkrónu“ sem hún, þrátt fyrir varnaðarorð þess efnis, telur að brjóti ekki í bága við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Nýkrónan felur í sér:
Eigendum snjóhengjunnar stæði til boða að fjárfesta innlands til mjög langs tíma áður en eignum þeirra yrði skipt yfir í Nýkrónu. Froðueignum á leið út úr landi yrði hins vegar skipt yfir í Nýkrónu þannig að 10 milljónir í gömlum krónum yrðu t.d. 2 milljónir í Nýkrónum. Launum fólks í landinu yrði breytt í Nýkrónur þannig að upphæð þeirra yrði óbreytt. Upptaka Nýkrónu myndi þannig laga ytra ójafnvægi hagkerfisins án þess að lífskjör yrðu skert verulega.
Lilja vill einnig nota Nýkrónuna til að jafna tekjudreifinguna í samfélaginu, því að hennar mati eiga sumir „allt of miklar“ eignir á meðan aðrir eru of skuldsettir.
Við upptöku Nýkrónunnar þyrfti að skrifa húsnæðisskuldir þannig að 10 milljón kr. lán í núverandi krónum yrði 8 milljónir í Nýkrónu og lækka eignir fjármagnseigenda til samræmis. Slík almenn leiðrétting mun fækka heimilum sem eiga við greiðsluvanda og skuldavanda að stríða um 15.000.
Upptaka Nýkrónu er ekki töfrabragð heldur nauðsynleg varnaraðgerð til að koma í veg fyrir aukna fátækt og stórfelldan landflótta á næstu árum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
