Björgólfur Thor kveðst kominn með ný spil á hendi. Ætlar sér að spila vel úr þeim
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir kveðst kominn með ný spil á hendi eftir kaup Watson á Actavis í síðustu viku. Hann segir að nú sé búið að stokka spilin upp á nýtt, hann sé kominn með ný spil á hendi og ætli sér að spila vel úr þeim.
Þetta kemur fram í pistli sem Björgólfur Thor ritar á heimasíðu sína í dag. Hann segir viðskiptin fela í sér góð tíðindi fyrir sig og aðra málsaðila:
Þetta voru góð tíðindi fyrir Actavis og Watson, enda verður sameinað fyrirtæki 3. stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims og samlegðaráhrifin eru umtalsverð. Þetta voru líka góð tíðindi fyrir lánardrottna, jafnt Deutsche Bank sem íslensku bankana, enda rennur stærsti hluti kaupverðsins upp í skuldir, í samræmi við skuldauppgjör mitt. Og þetta voru góð tíðindi fyrir mig sem helsta eiganda Actavis. Ég mun eignast hlut í sameinuðu fyrirtæki þegar fram líða stundir, en jafnframt þokast töluvert nær því að gera upp allar skuldir mínar og fjárfestingarfélags míns, Novators.
Björgólfur Thor skrifar pistil á heimasíðu Actavis í tilefni af sölu fyrirtækisins, þar sem hann lýsir stolti sínu yfir að hafa tekið þátt í ævintýralegri uppbyggingu fyrirtækisins á undanförum 13 árum, en í dag starfa hjá fyrirtækinu um 10.000 manns í rúmlega 40 löndum.
Hann segist ennfremur hafa óbilandi trú á fyrirtækinu og framtíð þess. Þess vegna hefði hann kosið að fá greiðslu frá Watson í formi hlutabréfa, enda væri hann sem fyrr sannfærður um að Actavis muni áfram skipa sér í framvarðasveit stærstu lyfjafyrirtækja heims.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
