Mánudagur 30.04.2012 - 08:10 - Ummæli ()

Forsetaframbjóðandi mætti ekki á eigin fund

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi úr Skagafirði, mætti ekki á fund sem hann hafði sjálfur boðað til á Eskifirði í gær.

Á fréttasíðunni Agl.is segir að svo virðist sem blaðamaður síðunnar hafi verið sá eini sem hafði áhuga á fundinum, því hann var mættur stundvíslega klukkan 17 í kirkju- og menningarmiðstöðina á Eskifirði, þar sem halda átti fundinn. Hannes var þá ekki sjáanlegur og allar dyr lokaðar.  Síðan segir í frétt Agl.is:

Til Hannesar sást kortér yfir fimm. Hann kom að læstum dyrum í Kirkju- og menningarmiðstöðinni og fór strax aftur. Hann sást svo ekki meir. Hann var einn á ferð,

Hannes hafði einnig boðað fundi á Egilsstöðum og á Reyðarfirði í gær, en ekki fer sögum af fundasókn þar.

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun mælist fylgi Hannesar innan við eitt prósent, líkt og fylgi þeirra Jóns Lárussonar og Ástþórs Magnússonar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is