Mánudagur 30.04.2012 - 17:21 - Ummæli ()

Nöturlegt að kveðja vini og ættingja á leið til Noregs í fermingarveislum

Þingmenn stjórnarandstöðunnar sjá fram að landflótta ef ekki verður ráðist hratt í aðgerðir á skuldavanda heimilanna.

Viðræður stjórnvalda við fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóða um lausnir til handa þeim hópi sem er með lánsveð gætu hafist í næstu viku. Stjórnarandstöðuþingmenn segja fjölmarga við það að gefa upp vonina vegna úrræðaleysis stjórnvalda.

Skuldastaða heimilanna var rædd á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, viðurkenndi að enn séu hópar í þjóðfélaginu sem glími við greiðslu- og skuldavanda. Nefndi hann barnafjölskyldur sem keyptu húsnæði rétt fyrir hrun, tekjulágir einhleypir einstaklingar og leigjendur sem líkast til hafa orðið fyrir mestu búsifjunum.

Steingrímur sagði að vandi fjölskyldna sé að stórum hluta vegna neyslulána, svo sem bílalána, námslána og yfirdráttarlána. Áætlar Steingrímur að helmingur greiðsluvanda fjölskyldna sé til kominn vegna slíkra lána sem séu enn þyngri í skauti en fasteignalán.

Nýlega skilaði starfshópur um lánsveð af sér áliti sem notað verður í viðræðum við Samtök fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóði. Alls notuðu 3.900 skuldarar lánsveð til að fjármagna fasteignakaup sín og þar af eru 2 þúsund í yfirsveðsettu húsnæði.

Lífeyrissjóðir hafa undir höndum drög að samkomulagi sem þeir eru að fara yfir og lýkur þeirri vinnu í lok vikunnar. Þá ættu formlegar samningaviðræður að geta hafist, segir Steingrímur.

Þingmönnum stjórnarandstöðunnar þótti ekki mikið til koma um aðgerðir ríkisstjórnarinnar og sagði Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, þingmaður Framsóknar, að hætta sé á að fjöldi Íslendinga missi vonina ef ekki komi til aðgerða fljótlega.

Undanfarnar vikur hafa eins og margir þekkja staðið yfir fermingar á Íslandi. Það hefur verið nöturlegt að verða vitni að því, í mörgum fermningarveislum, að þurfa að vera að kveðja vini sína og ættingja sem ætla sér að fara til Noregs, búnir að gefast upp. Þetta er ungt og vel menntað fólk, allt þeirra eigið fé er brunnið upp og það er búið að fá nóg af úrræðaleysi ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar í skuldamálum og flýr skattpíningu þeirra á millistétt í landinu.

Lilja Mósesdóttir benti á að samkvæmt rannsókn Seðlabankans hafi það fyrst og fremst verið tekjuháir sem notið hafa aðgerða ríkisstjórnarinnar. Á móti kemur að almenn leiðrétting hefði fækkað heimilum í greiðsluvanda um 15 þúsund.

Óréttlætið sem skuldaúrræði ríkisstjórnarinnar hefur búið til er orðið óbærilegt fyrir marga og ég óttast að margir munu hætt að greiða og flýja land eða grípa til eigin ráða.

Magnús Orri Schram, Samfylkingunni, sagði að flest heimili greiðsluvanda væru tekjulág, á meðan flest heimili í skuldavanda væru með háar tekjur. Hins vegar er 10. hvert heimili bæði í greiðslu- og skuldavanda og ljóst sé að almennar aðgerðir koma ekki til að hjálpa þessum hópi.

Þær eru dýrar og ómarkvissar og þá sérstaklega vil ég taka fram að Seðlabankinn í sinni nýju skýrslu mælir ekki með almennum aðgerðum á sviði skulda. Þeir sem tala fyrir almennum aðgerðum í skuldamálum gera það þvert á tillögur Seðlabankans,

sagði Magnús og bætti við að heimili með 200 þúsund krónur eða meira í tekjuafgang í hverjum mánuði muni taka til sín 30 prósent af almennum afskriftum.

Steingrímur sá sömuleiðis ástæðu til að svara gagnrýni Lilju Mósesdóttur.

Mér finnst ansi langt gengið þegar menn leggja hlutina þannig upp að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi búið til ranglæti í þessm efnum, eins og háttvirtur þingmaður Lilja Mósesdóttir gerði. Þar er nú ekki verið að láta menn njóta vafans…Ég hélt að menn væru að reyna að greiða úr þessum vanda. Það má deila um það hversu vel það hafi til tekist. En að ætla mönnum annað en að reyna það að góðum hug er langt gengið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is