Þriðjudagur 01.05.2012 - 11:16 - Ummæli ()

Efast um að meiri jöfnuður sé ríkisstjórninni að þakka – Bónusar lækkuðu og yfirvinna hvarf

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, efast um að þakka beri ríkisstjórninni að jöfnuður hér á landi mælist meiri en áður, heldur séu þetta einungis ein áhrif efnahagshrunsins. Forsætisráðherra segir jöfnuð nú svipaðan og hann var árin 1997 og 1998.

Í gær var kynnt skýrsla Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands þar sem meðal annars kemur fram að jöfnuður á Íslandi hefur aukist undanfarin ár. Tekist hafi að hlífa tekjulægri hópum frá afleiðingum hrunsins, en tekjuhærri hópar tekið á sig meiri byrðar. Þannig minnkaði kaupmáttur tekjulægsta hópsins um 9 prósent á árunum 2008 til 2010, en tækjuhæsta hópsins um 38 prósent.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherra á Alþingi í gær hvort hún teldi að þessi árangur sé ríkisstjórninni að þakka, eða hvort skýringanna sé frekar að leita í því að fjármagnstekjur hrundu, bónusar lækkuðu, yfirvinna hvarf og meðallaun lækkuðu hjá hinum tekjumeiri.

Spurði Tryggvi jafnframt hvort ánægjan yfir auknum jöfnuði væri ef til vill fögnuður yfir áhrifum hrunsins á hina tekjuhærra.

Jóhanna sagði að það væri „fullkomlega réttlætanlegt“ þótt þau 10 prósent í tekjuhæsta hópnum – þeir sem eru með 7 milljónir króna eða meira í tekjur -  sættu einhverri tekjuskerðingu á meðan hægt væri að hlífa tekjulægri hópum við áhrifum hrunsins.

Við erum að ná til baka þeim ójöfnuði sem myndaðist í tíð Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna. Við erum búin að ná honum niður í það sem var árin 97 til 98, en hann var orðinn hrikalega mikill í tíð Sjálfstæðismanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is