Þriðjudagur 01.05.2012 - 12:34 - Ummæli ()

EM í fótbolta orðið að pólitísku hitamáli – Þjóðarleiðtogar sniðganga keppnina í Úkraínu

Mjög er óttast um heilsu Júlíu Tímósjenkó sem hefur verið í hungurverkfalli síðan 20. apríl. Mynd/Getty images

Evrópumótið í knattspyrnu stefnir í að verða rót meiriháttar deilu á alþjóðavettvangi. Nú þegar hafa leiðtogar nokkurra Evrópuríkja gefið út að þeir muni sniðganga þann hluta keppninnar sem fram fer í Úkraínu. Ástæðan er meðferð þarlendra stjórnvalda á Júlíu Tímósjenkó, fyrrum forsætisráðherra.

Mótið í ár fer fram í Úkraínu og Póllandi og hefst 8. júní. Um helgina lýsti Angela Merkel Þýskalandskanslari því yfir að hvorki hún né aðrir ráðherrar í hennar ríkisstjórn munu sækja leiki sem leiknir verða í Úkraínu, nema að staða mannréttinda í landinu verði bætt.  Er þá fyrst og fremst verið að vísa til Júlíu Tímósjenkó sem í fyrra var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir spillingu. Hún hefur verið í hungurverkfalli síðan 20. apríl.

Aðrir leiðtogar Evrópuríkja ætla að feta í fótspor Merkel, sem og áhrifamenn innan Evrópusambandsins. Þannig segir talsmaður José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, að hann hafi ekki í hyggju að fara til Úkraínu, eins og sakir standa.

Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA. Þegar ákveðið var að mótið yrði haldið í Úkraínu var markmiðið meðal annars sýna þær framfarir sem orðið hafa í landinu síðan Sovétríkin liðu undir lok. Þess í stað er útlit fyrir að forseti landsins, Viktor Janúkóvits, verði aleinn í VIP-stúkunni þegar flautað verður til leiks.

Englendingar eru meðal þeirra þjóða sem keppa alla sína leiki í riðlakeppninni í Úkraínu. Nú þegar er farið að skora á David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að sniðganga mótið.

Úkraínumenn eru komnir í mikla vörn vegna málsins. Talsmaður utanríkisráðuneytis sakaði í gær Þjóðverja um kaldastríðs hugsunarhátt og sagði að fótbolti hafi ekkert með stjórnmál að gera.

Afstaða okkar til EM 2012 er mjög einföld. Pólitísk deiluefni verða ekki leyst með því að sniðganga íþróttaviðburði.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórnmál hafa veruleg áhrif á EM. Árið 1992 var liði Júgóslavíu vísað úr keppni vegna átakanna á Balkanskaga. Danir voru kallaðir inn í keppnina á síðustu stundu. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu mótið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is