Viðskipti Þriðjudagur 01.05.2012 - 22:14 - Ummæli ()

Evrópusambandið undirbýr „Marshall aðstoð“ fyrir aðildarríki

Framkvæmdastjórn ESB ætlar að kynna 200 milljarða evra fjárfestingapakka á ríkjaráðstefnu sem haldin verður í júní. Markmiðið er að kynda undir fjárfestingu í aðildarríkjum sambandsins.

Peningarnir verða notaðir til fjárfestinga í innviðum, endurnýjanlegri orku og „þróaðri tækni“ að því er spænska blaðið El País greinir frá. Markmiðið er að koma af stað hagvexti og minnka atvinnuleysi, þó án þess að það komi niður á skuldastöðu aðildarríkjanna.

Áætlunin er meðal annars byggð á hugmyndum Francios Hollande, forsetaframbjóðenda Sósíalista í Frakklandi, og mun Evrópski fjárfestingabankinn leika lykilhlutverk í framfylgd hennar.

Leiðtogar Evrópuríkja hafa mátt þola harða gagnrýni vegna viðbragða þeirra við skuldavanda evruríkja á borð við Grikklands, Spánar og Ítalíu. Þannig var ESB harðlega gagnrýnt í nýlegri skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, þar sem segir að áhersla sambandsins á niðurskurðaraðgerðir hafi haft skelfilegar afleiðingar fyrir vinnumarkaðinn í álfunni. Voru leiðtogar ESB hvattir til að koma fram með atvinnuskapandi aðgerðir sem örva hagvöxt.

Áætlunin verður kynnt á næstu ríkjaráðstefnu ESB sem haldin verður í júní, að því segir á fréttavefnum Euractiv.com.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is