Þriðjudagur 01.05.2012 - 20:25 - Ummæli ()

Rannsóknarnefnd skipuð – Skoðar hvað varð um muni úr „Einvígi aldarinnar“

Úr skákeinvígi Bobby Fischer og Boris Spassky.

Skáksamband Íslands hefur skipað nefnd sem ætlað er að rannsaka hvað varð um muni úr skákeinvígi Bobby Fischer og Boris Spassky, hvernig sölu þeirra og varðveislu þeirra var háttað í kjölfar einvígisins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Skáksambandsins í ljósi frétta um að munir úr einvíginu, sem háð var hér á landi árið 1972, verða seldir úr landi.

Stjórn sambandsins hefur því  ákveðið skipa nefnd sem hefur það verksvið að rannsaka hvað varð um muni tengda einvíginu og hvernig sölu og varðveislu á þeim var háttað í kjölfar einvígisins og reyna að kortleggja hvar þeir munir eru í dag.

Nefndinni er ætlað er skoða gögn SÍ og önnur aðgengileg gögn, ræða við forsvarsmenn skákhreyfingarinnar í byrjun áttunda áratugarins, sem og þá aðila sem tengdust sölu muna frá Einvígi aldarinnar.  Með skipan þessarar nefndar er það von Skáksambandsins að hin ýmsu atriði er varði muni Einvígis aldarinnar komist á hreint.

Skáksambandið hvetur jafnframt þá sem hafa verðmæta muni tengda Einvíginu að hafa samband við skrifstofu sambandsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is