Nubo fær Grímsstaði á Fjöllum eftir allt saman. Leigir til 40 ára
Huang Nubo fær Grímstaði á Fjöllum á leigu til 40 ára samkvæmt tillögum sem lagðar verða fyrir ríkisstjórn á föstudag. Lagt er til að hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norður- og Austurlandi kaupi jörðina.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þar kom fram, að atvinnuþróunarfélögin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu hafa skilað útfærslu á því með hvaða hætti sveitarfélög á Norður- og Austurlandi geti eignast land á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo. Er þar lagt til að sveitarfélögin stofni hlutafélag sem kaupi ríflega 70 prósenta hlut jarðarinnar. Sveitarfélögin sjálf leggi til eigið fé við stofnun félagsins, en ekki er gert ráð fyrir skuldsetningu eða ábyrgðum sveitarfélaganna tengt kaupunum.
Fram kom í fréttum Ríkissjónvarpsins, að meðal þess sem lagt er til er að íslenskt félag Huangs Nubo leigi landið til 40 ára og greiði leigufé fyrirfram. Kaup sveitarfélaganna á landinu verði þannig fjármögnuð með fyrirframgreiddri leigu. Rík áhersla er lögð á að eignarhaldið verði óumdeilt í höndum kjörinna fulltrúa af Norður- og Austurlandi.
Áhugi Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum er ekki nýtilkominn. Hann vildi kaupa landareignina fyrir tæplega níu hundruð miljónir króna á sínum tíma, en var synjað um kaupin af Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra sem féllst ekki á að veita honum undanþágu frá lögum um bann við kaupum ríkisborgara utan EES á íslensku jarðnæði.
Í heildina er áætlað að fjárfestingar Huang Nubos á Grímsstöðum verði um 20 milljarðar króna og skapi 400-600 störf.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
