Fimmtudagur 03.05.2012 - 17:00 - Ummæli ()

Bin Laden hafði áhyggjur af minnkandi áhrifum al-Kaída – Myrðið Obama en látið Biden vera

Gögn úr fylgsni Osama Bin Laden voru birt í dag.

Gögn sem fundust í fylgsni hryðjuverkaleiðtogans Osama Bin Laden í Abbottabad í Pakistan benda til þess að hann hafi verið óánægður með þróun mála innan al-Kaída og sífellt minnkandi áhrif samtakanna.

Bandaríski herinn komst yfir gögnin þegar Bin Laden var ráðin af dögum fyrir um einu ári síðan og voru þau birt í dag.

Í gögnunum kemur fram að Bin Laden var óánægður með þá stefnu sem hryðjuverkasamtök víða um heim, og kenna sig við al-Kaída, hafa tekið á liðnum árum. Beindi hann þeim fyrirmælum til tengdra samtaka að einblína á árásir gegn Bandaríkjamönnum, en ekki gegn öðrum múslimum.

Gögnin, sem eru 175 blaðsíður að lengd, innihalda meðal annars persónuleg bréf Bin Ladens til annnarra háttsettra aðila innan al-Kaída.

Þar kemur meðal annars fram að samskipti al-Kaída við stjórnvöld í Íran voru afar stirð. Þótti Bin Laden að Íranir sýndu samtökunum fálæti og gagnrýndi hversu treg þau voru að sleppa föngum úr haldi, meðal annars meðlimum Bin Laden fjölskyldunnar.

Hvergi er þess getið að Bin Laden hafi verið í tengslum við stjórnvöld í Pakistan, en það þótti vekja grunsemdir að honum tókst að fara huldu höfði í landinu í níu ár eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001.

Bin Laden lýsti einnig áhyggjum yfir því að múslimar virtust orðnir fráhuga hugmyndafræðinni um heilagt stríð. Hvatti hann til þess í bréfi, sem hann skrifaði árið 2010, að al-Kaída þyrfti að hefja nýja sókn til að afla nýrra fylgjenda. Hann lýsti sömuleiðis yfir vonbrigðum sínum með arabíska vorið í fyrra og sagði ástæðu fyrir múslima að óttast um þróun mála.

Loks skipaði Bin Laden undirmönnum sínum að nota hvert tækifæri til að reyna að ráða Barack Obama Bandaríkjaforseta eða David Patraeus hershöfðingja af dögum í heimsóknum þeirra til Afganistan og Pakistan. Hann mælti hins vegar sterklega gegn því að varaforsetinn Joe Biden yrði ráðinn af dögum.

Biden er algjörlega óundirbúinn til að gegna þeirri stöðu [forseta Bandaríkjanna] og það mun leiða Bandaríkin í krísu,

segir í einu bréfanna sem Bin Laden skrifaði. BBC greinir frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is